Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1944, Page 34
Halldór Jónsson:
„Og altaf fær borgarinn skipulagsskrár6i.
Nú árið er liðið á aldanna skaut. Nýtt ár byrj-
að með nýjum viðfangsefnum og öðrum óleyst-
um frá liðna árinu. Eitt alvarlegasta málefni
hverrar þjóðar er, hvernig forráðamenn hennar
í æðstu stjórn og löggjafarvaldi heppnast verk
sitt, sem þeim er falið.
Sjómenn og sjávarútvegsmenn hafa meðal
annara um langt skeið látið í ljósi óánægju sína
yfir því hvernig hefir verið búið að sjávarútveg-
inum á ýmsan hátt.
Mennirnir sem sjávarútveg stunda úr víkum
og vogum og úti við annes landsins á litlum
fleytum, hafa numið þá beizku reynslu, að þeirri
skömminni skárri sem atvinnutæki þeirra eru,
þess hlutfallslega meira, er á þeim níðst og sú
hála heimspeki gerir vart við sig, að bezt sé að
draga af sér í afkastamöguleikum.
Á liðna árinu framleiddi sjávarútvegurinn á
ýmsum sviðum meiri verðmæti en nokkru sinni
áður, en jafnframt hafa möguleikar til endur-
nýjunar skipastólsins að verulegu gagni, dregist
enn meira saman.
Alþingi afgreiddi þó nokkurnveginn sammála
eitt mál af viti, ef áfram er unnið í sömu átt,
frv. um brt. á hafnarlögum Rvíkur, með það
fyrir augum að koma upp framtíðar skipavið-
gerða- og skipasmíðastöð við Elliðaárvog, ef
samkeppnisfært verður við það sem erlendis
fæst í þessum efnum, verður það fyrst og fremst
þjóðinni allri til gagns, með þvi að nota þar inn-
lendan vinnukraft við þá vinnu sem annars fór
öll út úr landinu.
En ekkert kom fram í þá átt, er tryggt gæti
þjóðinni, að stórvirkustu atvinnutækin þ. e. tog-
ararnir, yrðu endurnýjaðir. Allmikill gnýr varð
á Alþingi um frv. til laga um brt. á lögum um
tekju- og eignaskatt, er dagaði þó uppi eftir 3.
umræðu í efri deild. Stjórn F.F.S.l. sendi Al-
þingi mótmæli gegn niðurlagi 1. gr. þessa frv.
og skal í því sambandi sagt nokkru nánar frá
því hér í blaðinu.
1 fyrstu grein þess segir m. a. „. . . . hjá þeim
af þessum félögum, sem hafa sjávarútveg sem
aðalatvinnurekstur, má draga frá tekjum ný-
byggingarsjóðstillag ,sem nemur 1/3 af hreinum
tekjum félags, áður en tekjuskattur, stríðsgróða-
34
skattur og útsvar, sem greitt hefir verið á ár-
inu, er dregið frá tekjunum.
En í niðurlagi greinarinnar segir svo: ,,Nú er
nýbyggingarsjóður orðinn jafnhár hæfilegu vá-
tryggingarverði skips eða skipa skattþegns, að
dómi ríkisskattanefndar, eða sjóðurinn er orð-
inn 2 milljónir króna, og má hið skattfrjálsa
framlag í nýbyggingarsjóð þá eigi nema meira
en 1/6 af hreinum tekjum félags samkvæmt
framansögðu. (Eða eins og áður var). Þessi tak-
mörkun á skattfrjálsu nýbyggingarsjóðsfram-
lagi skal þó ekki koma til greina fyrr en sjóður-
inn er orðinn 200 þús. krónur.“
Með upphafi greinarinnar hefir því fast fram-
lag til nýbyggingarsjóðs verið aukið um helm-
ing frá því sem var hjá þessum félögum, eða því
sem nam varasjóðstillaginu. En með niðurlag-
inu, er veiðin sýnd en ekki gefin.
Það er upplýst að heildarupphæð nýbygging-
arsjóðs skipastóls landsmanna nemi alls um 15
millj. króna. Þar af rúmar 9 milljónir í Rvík.
Nýbyggingarsjóðseign annara útgerðarfélaga en
togara mun hverfandi lítil, en hjá togurunum
um 430.000 kr. að meðaltali á skip. 1 niðurlagi
fyrrnefndrar greinar segir ,að takmörkunin
komi ekki til greina fyrr en sjóðurinn er orðinn
200.000 kr. Hjá hinum smærri útgerðarfélögum
er eins og fyrr segir lítið eða ekkert til að tak-
marka, þetta snertir því mest botnvörpuskipin.
Ennfremur segir í sömu grein. Nú er nýbygg-
ingarsjóður orðinn jafnliár hæfilegu vátrygg-
ingarverði skips eða skipa skattþegns, að dómi
ríkisskattanefndar, eða sjóðurinn er orðinn 2
millj. kr.
Þannig eru staðreyndirnar í stuttu máli. En
þá er að gæta. Flestir gera ráð fyrir að „velti-
árin“ verði varla fleiri í bili, einkum ef styrjöld-
inni yrði lokið á þessu ári. Mesta lagi eitt fyr-
irtæki gæti hafa komist upp í 2 millj. i nýbygg-
ingasjóði. Tölur sýna að til jafnaðar eru 430.000
kr. á togara, er þeir hafa safnað á 4 árum í ný-
byggingarsjóð eða jafnvirði ca. 35 smál. vélbáts
eftir verðlagi hér.
Með helmings ,,aukningunni“ í nýbygginga-
sjóðinn þ. e. 1/3 eins og frv. stefndi að, myndu
þeir með sama gangi varla auka hann meira en
VlKINGU H