Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Qupperneq 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Qupperneq 27
I góðum félagsskap í Mexíkó. gagngerar endurbætur á skipinu. Verk- efni rannsóknarskipanna eru mjög fjöl- breytt. „Við höfum verið við áturannsóknir, botnprufur, telja hvali, hákarla- og sverð- fiskrannsóknir með hákarlalínu. Þegar ég var fyrir sunnan vorum við mest við rækjurannsóknir." HEF REKIST Á LANDANN Á ÓLÍKLEGUSTU STÖÐUM Aðspurður segir Gunnar að ástand fiskstofna við strendur Bandaríkjanna sé afar slæmt. Bátar og skip hafa verið leigð til Suður-Ameríku og Afríku og mörg- um hefur hreinlega verið sökkt. Þegar Gunnar kom fyrst út voru nokkrir íslenskir sjómenn á svæðinu. Hann segir að Islendingum í sjó- mennsku hafi fækkað í Bandaríkjunum og yngri menn haft vit á að söðla um og fmna sér nýja atvinnu. „Hins vegar hef ég rekist á landann á óiíklegustu stöðum. Ég hafði verið þrjú ár í Mississippi þegar ég uppgötvaði einn íslending í sama bæ.“ MYNDIN ÞAKTI ALLA BRINGUNA Gunnar er stór og mikill maður vexti með stórskorið andlit. Hendurnar eru „Hins vegcir hefég rekist á landann á ólíklegustu stöðum. Eg hafði verið þrjá ár í Mississippi þegar ég uppgötvaði einn íslending í sama bœ. “ engar skrifstofuhendur og geta áreiðan- lega tekið á. ímynd íslenska sjómanns- ins. Á handleggnum er gamaldags tattó sem hefur fylgt eiganda sínum í 45 ár. „Tattóið féldt ég í Englandi þegar ég sigldi á Þórólfi, sem Kveldúlfsútgerðin átti. Einu sinni ætlaði ég að láta hressa upp á það í Nýhöfninni í Kaup- mannahöfn þegar ég sigldi á Gullfossi en endurbæturnar mistókust,“ segir Gunn- ar og hlær. „Við vorum fjórir saman á tattóstofunni í Englandi og einn hafði fengið sér heldur mikið neðan í því og sofnað. Þegar tattómeistarinn var búinn með okkur þrjá spurði hann hvort ekki ætti að skreyta þann sofandi. Við héld- um það og völdurn risastóra mynd af riddara í öllum herklæðum með lensu. Sá sofandi var klæddur úr að ofan og myndinni þrykkt á bringuna. Myndin þakti alla bringuna og lensan endaði í handarkrikanum. í því vaknaði strákurinn og rak upp skaðræðisöskur. Hann róaðist þegar hann uppgötvaði að verkið var enn á byrjunarstigi og það var hægt að þvo riddarann af.“ FER EKKI i ÞENNAN HELVÍTIS HITA Gunnar á mikið safn mynda frá mörg- um ólíkum stöðum, heitum og köldum. Hann vill ekki nefna neinn uppáhalds- stað og svarar fáu þegar blaðamaður spyr hvar hann ætli að eyða ellinni. „Ég fer ekki í þennan helvítis hita,“ segir hann. Synir Gunnars hafa kvænst banda- rískum konum og eiga börn. Þeir eru báðir kírópraktorar, sem ekki er amalegt fyrir bakveikan sjómann, enda segir Gunnar að þeir reddi honum alltaf þegar bakið segir til sín. Þótt Gunnar vilji lítið tala um framtíðina er augljóst að undir niðri blundar löngun til að flytja aftur til Islands. ■ Texti: Jóhanna A.H. .Jóhannsd. VÍKINGUR 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.