Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1999, Blaðsíða 72
Icedan ehf.
Með nýjungar
og framfarir að leiðarljósi
lcedan ehf var stofnað í júlí
1992, fyrirtækið er staðsett að
Óseyrarbraut 4, í Hafnarfirði í
eigin 1200 fermetra húsnæði,
starfsmenn eru tíu.
Brdr. Markussens Metalvar-
efabrik A/S (BMM) „the blue
line“ er þekkt fyrir gæða fram-
leiðslu á veiðarfærum fram-
leiddum úr stáli og má þar
nefna t.d. sigurnagla, víra-
kóssa, blakkir ásamt fjölda
annarra vörutegunda.
Net Systems er framleiðandi
að hnútalausu fléttuðu Dy-
neema neti sem heldur betur
hefur slegið í gegn hér á íslandi
og á Grænlandi, alls hafa verið
sett upp um 100 troll úr þessu
neti á s.l. 2 árum, þess má geta
að lcedan er umboðsaðli fyrir
þetta net einnig á Grænlandi,
Færeyjum og á Nýfundnalandi.
Helsti kostur þessa nets er
hversu lítil mótstaða er í netinu
og er það vegna þess að engir
hnútar eru í netinu, einnig er
netið 40% sterkara en hnúta-
net þar sem engir hnútar eru.
Skipstjórar sem breyttu yfir í
fléttaða hnútalausa netið frá
lcedan án þess að stækka
trollin sín staðfesta að olíunotk-
un hafi minnkað um 20%.
Einnig hafa verið settar upp 3
dragnætur og einn flottrolls-
belgur úr þessu neti með mjög
góðum árangri.
Thyboron Skibssmedie A/S,
eru framleiðendur að Thyboron
trollhlerunum sem eru löngu
þekktir hér á landi sem og ann-
ar staar, Thyboron hefur frá-
bæra markaðsstöðu hér á landi
hjá rækjuflotanum en áætlað er
að um 70-80% rækjuskipa noti
Thyboron hlera. Hvað varðar
Thyboron hlera fyrir fiskitroll þá
hefur Ófeigur VE notað hlerana
með mjög góðum árangri s.l.
tvö ár, nýlega fékk Kaldbakur
EA sína fyrstu Thyboron hlera
fyrir fiskitroll, þar um borð eru
menn mjög ánægðir með hler-
ana.
Gunnebo A/S, framleiða keðj-
ur, patentlása og gilskróka á-
samt breiðri línu af hifingarút-
búnaði. Nýtt hjá Gunnebo eru
ryðfríir patentlásar og gilskrókar.
Selstad A/S, framleiðir drag-
nótarmanillu sem hefur notið
hefur mikilla vinsælda hjá skip-
stjórum dragnótarbáta, í dag-
legu tali þá segja menn
,,-norska manillan“. Aðalsver-
leikinn hefur verið 26-28mm en
nú hefur lcedan selt fyrstu
sveru manilluna um borð í bát
á Vestfjörðum, um er að ræða
36mm manillu.
Viking Lifesaving A/S, er
framleiðandi á björgunarbátum
og flotgöllum, Viking er löngu
þekkt fyrir hágæða framleiðslu.
Tycsa trollvírar, vinnsluvírar
og kranavírar;
Cyklop bindivélar og bindi-
borðar bæði úr plasti og stáli;
Salinas trollnet;
Cordex tóg og garn ;
Carl Backs vinnufatna_, t.d.
Showa vettlingar, sjógallar og
samfestingar.
Icedan stofnaði fyritæki í
St.John's á Nýfundnalandi á
seinasta ári, fyrirtækið heitir
lcedan Canada Inc., og er í
eigin 1200 fermetra húsnæði.
Fyrirtækið þjónustar flest öll
skipin sem stunda veiðar á
Flæmingjagrunni ásamt því að
þjónusta heimaskip.
Icedan ehf tekur þátt í sjáv-
arútvegssýningunni og verður
með 80 fermetra sýningarbás
númer B80. ■
72
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR