Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Page 13
Togarínn Northem Spray strandaður undir Grœnuhlíð í ísafjarðardjúpi 23. október 1963. Varðskipíð Óðinn lónar fyrír framan, en eltki tókst að
bjarga togaranum að þessu sínni. Ljósmynd: Sæmundur Ingólfsson
ekki. Var þá gripið til þess ráðs að létta
skipið. Fiskurinn var fluttur yfir í annan
brezkan togara, alls um 750 kits. Einnig
var lögð í land rúmlega 130 metra löng
olíuleiðsla og olíunni dælt á bíla í fjör-
unni, alls um 60 tonnum. Þegar öllu
þessu var lokið var korninn minnkandi
straumur og tókst því ekki að ná togar-
anum strax á flot og var því ákveðið að
bíða stækkandi straums. Það tókst loks
á aðfangadagsmorgun og hélt togarinn þá
áleiðis til Reykjavíkur í fylgd varðskips-
ins Ægis og kom þangað á annan jóla-
dag. Þar var hann tekinn í slipp áður en
hann hélt áleiðis lil Englands.
23. október 1963 strandaði Northern
Spray aftur og nú undir Grænuhlfð. Það
var öllu lakara skipalægi en Norður-
tangarifið, og tókst ekki að ná togaranum
á flot aftur, en varðskipið Óðinn og
brezkur togari björguðu áhöfninni.
Keyptir til íslands
Að stríðinu loknu keyptu tvö íslenzk
útgerðarfélög þrjá „sápulogara”. Verzlun
ó. Jóhannesson á Vatneyri keypti togar-
ana Northern Chief og Northern Reward
árið 1947, og hlutu þeir nöfnin Gylfi BA
77 og Vörður BA 142, eins og eldri tog-
arar útgerðarinnar. Skipstjórar á þeim
voru Gísli Bjarnason ogjóhann Péturs-
son, báðir gamalreyndir togaraskipstjór-
ar, sem höfðu starfað lengi hjá Vatneyrar-
útgerðinni á Patreksfirði. Útgerðarfélag-
ið Alliance hf. í Reykjavík keypti þriðja
togarann. Það var Northern Gift, og
hlaut hann nafnið Kári RE 195. Við
skipstjórn á honum tók Guðm. Helgi
Guðmundsson, einnig gamalreyndur tog-
araskipstjóri.
Togarinn Vörður fórst á leið frá íslandi
til Englands 29. janúar 1950. Fórust
með honurn fimm menn, en togarinn
Bjarni Ólafsson bjargaði 14 skipverjum,
sem var talið mikið afrek í illviðri og
stórsjó. Frásögn af björguninni er í Sjó-
mannablaðinu Víkingi 2.-3. tbl. 1950,
skráð af Sverri Þórðarsyni, blaðamanni á
Morgunblaðinu og Gunnari Proppe, sem
var starfsmaður Vatneyrarverzlunar á
þessum tíma. Þar segir m.a. frá því, að
loftskeytamaðurinn á Verði, Grímur
Jónsson, sem síðar var lengi loftskeyta-
maður á ísafirði og hjá Landhelgisgæzl-
unni og flugumferðarstjóri á ísafirði, hélt
uppi sambandi við togarann Bjarna
Ólafsson allan tímann meðan á björgun-
araðgerðum stóð. Einn skipverja á Verði,
Kári Jóhannesson, sagði svo frá: „Loft-
skeytamaðurinn, Grímur Jónsson, hafði
staðið vörð í klefa sínum, þar til hann
Flakið af Northern Spray í marz 1965, luílfu öðru ári eftir að togarinn strandaði undir Grœnu-
hlíð. Myndin sýnir vel hið mikla eyðingarafl scm býr í sjónum og vetraiyeðrum.
Ljósmynd: Sæmundur Ingólfsson
Sjómannablaðið Víkingur - 13