Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Side 24
Skipaskoðun íslands Víkingur rabbar við Hálfdan Henrysson Hálfdan Heniysson. Skipaskoðun íslands skoðar skip upp að 400 brúttótonnum en smœstu bátarnir, sem falla undir þessa skoðunarskyldu, eru 6 metrar að lengd. Hálfdan Henrysson heitir maður, dökk- ur yfirlitum en brosmildur og glaðvær. Hann ber það ekki utan á sér að hafa tekið þátt í stríðum fyrir íslands hönd. Það gerði hann samt og stríddi ítrekað við Breta á íslandsmið- um. „Ég var hjá Gæsl- unni í aldarfjórðung.” útskýrir Hálfdan og brosir breitt. „Byrjaði 1960 hjá Eiríki Kristó- ferssyni skipherra.” Árið 1986 yfirgaf Hálfdan Landhelgis- gæsluna og gekk til liðs við Siglingamálastofn- un. Seinna réðst hann til Slysavarnafélags ís- lands og þá aftur til Siglingamálastofnunar, sem þá hafði gengið í gegnum nokkrar breyt- ingar sem endurspegl- uðust meðal annars í því að nafn hennar hafði styst og var orðið Siglingastofnun. Nú er Hálfdan fram- kvæmdastjóri Skipa- skoðunar íslands sem hann og sonur hans Henry eiga til helminga á móti verkfræðistofunni Hönnun. Og það er um þetta fyrirtæki með stóra nafninu, Skipaskoðun fslands, sem Vík- ingur ætlar að fræðast svolítið. Einkavæðingin „Árið 2003 var lögum um eftirlit með skipum breytt í þá veru að opnuð var leið til einkavæðingar á skoðun og eftir- liti með skipum. Áður hafði Siglingastofnun ís- lands haft með þetta eftir- lit nær eingöngu að gera a.m.k þá þætti sem snéru beint að öryggi skipa og á- hafnar. Hluti eftirlits hafði þá lengi verið hjá viður- kenndum flokkunarfélög- um að undanskildu eítirliti með öryggisbúnaði. Með reglugerð sem tók gildi í árslok 2003 var Siglinga- stofnun heimilað að fela viðurkenndum faggiltum skoðunarstofum að hafa eftirlit með skipum allt að 400 brúttótonnum að stærð með nokkrum und- antekningum. I ársbyrjun 2004 var síðan gefin út reglugerð um starfshætti faggiltra skoðunarstofa skipa og búnaðar . Þann 1. mars 2004 færðist eftir- litið síðan til 4 aðila sem fengið höfðu starfsleyfi til bráðabirgða til að hafa eft- irlit með skipum. Við tók reynslutími þar sem markmiðið var að einkafyrirtæki tækju yfir þennan verkþátt Siglinga- stofnunar og fengju fag- gildingu að loknum reynslutíma og úttekt Lög- gildingarstofu að honum loknum. Tómas Sigurðsson verkfræðingur hafði þá kom- ið að máli við okkur feðga og kannað hvort við ættum ekki að skella okkur í slaginn. Eg lét tilleiðast en þegar Tómas var ráðinn forstjóri Reyðaráls á Reyðar- firði neyddist hann til að gefa fyrirtækið upp á bátinn en ég hélt áfram með syni mínum og við vorum svo heppnir að fá til liðs við okkur verkfræðistofuna Hönn- un hf sem er ein stærsta verkfræðistofa landsins. Framkvæmdastjóri Hönnunar, Eyjólfur Árni Rafnsson verkfræðingur, er jafn- framt stjórnarformaður Skipaskoðunar íslands og skrifstofa okkar er í húsi Hönnunar að Grensásvegi 1 í Reykjavík. Þessi samvinna hefur verið afar farsæl og ég hef notið mikils velvilja starfsfólks Hönnunar. Fyrirtæki okkar hefur vaxið og hlotið faggildingu, verkefnaukningin hefur verið töluverð milli ára, en okkur er það ekkert kappsmál að vaxa af ein- Barhasuða Guðmundar ehf. Vesturvör 27 • 200 Kópavogur Sími: 564 3338 • Fax: 554 4220 GSM: 896 4964 • 898 2773 Kt. 621297 2529 fyrir_______________________ Hitaveitur • Pústkerfi • Vatnslagnir Olíulagnir • Frystikerfi • Loftlagnir Viðgerdir og smíði á þenslumúffum Ryðfríir stálbarkar 24 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.