Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Page 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Page 46
INÆSTA BLAÐI, MEÐAL ANNARS: Hilmar Snorrason skrifar um gömul íslensk skip sem hafa ratað til Namibíu og segir okkur frá því hvernig Afríkumenn nota þau. Bernharð Haraldsson ræðir við áttræðan sjó- mann sem hóf sjómennskuferilin á 73. ald- ursári. Sá heitir Ragnar Sigtryggsson, fyrrver- andi landsliðsmaður í knattspyrnu, og sjómað- ur á Kleifarberginu ÓF. Þórdís Bernharðsdóttir skrifar um þróun skipasmíða í heiminum. Hvernig skipin hafa verið að stækka jafnt og þétt. Um hina 80 tonna Santa Mariu til framtíðarskipsins, Freedom Ship, sem verður meira en einn kíló- metri að lengd og rúmar meira en 30.000 íbúa með fasta búsetu um borð. Birt verður gamalt viðtal við Guðjón Guð- björnsson, sem ekki hefur sést víða, en hann var stýrimaður á Snæfellinu þegar það lenti í á- rásum bæði Þjóðverja og bandamanna árið 1940. • Saga lengsta skipaskurðar heimsins, Súes, verður rakin í máli og myndum, allt frá dögum faraóanna til átaka hinna ólíklegustu þjóða um skurðinn. Ólafur Ragnarsson, skipstjóri og stýrimaður, segir frá ævintýralegum siglingum um heimshöfin. Gunnar Guðmundsson skrifar frá Bandaríkjun- um um ótrúlega þrekraun tveggja sjómanna frá Gloucester í Massachusetts. Gunnar Guðmundsson skrifar frá Bandaríkjunum: Skrímslið Sjómenn hafa fært eitt og annað að landi, og ekki alltaf farið troðnar slóð- ir í þeim efnum. Fyrir daga ljósvaka- miðla og flugvéla, sem eru ekki nema örskot að skjótast á milli landa, voru það iðulega sjómenn sem opnuðu löndum sínum nýja sýn á heiminn og kenndu þeim að ekki er allt eins og í heimahögunum. Haustið 1875 opnaði seglskipið Amerika einn slíkan verald- arglugga þegar það lagðist að bryggju í New York. Koma skipsins hefðu ekki þótt merkileg tíðindi og ekki verið getið í blöðunum nema fyrir þær sakir að upp úr iðrum þess kom torkenni- legt dýr. Skrímsli, æptu bæjarbúar skelfingu lostnir, þegar þeir sáu skepnuna. Sama var uppi á teningnum þegar dýrið birtist í Salem í Massachusetts. Hvarvetna flýði fólk í felur, æpandi og veinandi. Þetta er stærsta dýr sem nokkur Bandaríkjamaður hefur séð, með risastór lafandi eyru og langt nef sem dregst eftir götunni, skrifaði bæjarblaðið Salem Gazetle. Sannleikurinn í málinu var sá að skrímslið var fíll, sá fyrsti sem tók land í Bandaríkjunum eftir að ritöld hófst. Skipstjórinn á Ameríku, Jacob Crownins- hild, var fæddur prakkari og hafði ætlað að koma fjórum bræðrum sínum á óvart með uppátækinu. Á leiðinni yfir hafið hafði fyrsti stýrimaður, Nat Hathorne, séð um fíl- inn sem var aldrei kallaður annað en Beta gamla eftir að hann fluttist til Bandarikjanna. Halhorne hafði hlaðið skipið af allskonar grænmeti en mataræði Betu átti eftir að breytast nokkuð í nýrri heimsálfu. Þegar hún var orðin að einu undri veraldar og sýningardýri á torgum Salemborgar, þar sem fullorðnir greiddu tuttugu og fimm sent og börn tólf og hálft fyrir að berja hana augum, var hún byrjuð að þamba púrtvín með öllu kálmel- inu. Innan skamms var Beta orðin að 1.500 kílóa fyllibyttu sem enginn kunni tökin á. Crowninshild hafði selt aumingja skepnuna fyrir stórfé en nýju eigendurnir ekki haft fyrir því að læra af Hathorne hvernig átti að hugsa um fílinn. Fyrir vikið andaðist gamla Beta úr drykkjuskap, löngu fyr- ir aldur fram. Og lauk þar sem ævi fyrsta fílsins sem nam land í Banda- ríkjunum. 46 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.