Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 54
Náttúrufræðingurinn
8. mynd. Núverandi útbreiðsla sagþangs í Trongisvágsfirði á Suðurey (skv. athugun í
maí 2004).
algengar við Færeyjar sem ekki hafa
fundist við ísland. Sem dæmi má
nefna blóðblöðku, Callophyllis lacini-
ata, og Furcellaria lumbricalis, tegund-
ir sem hafa norðurmörk útbreiðslu
sinnar við Færeyjar (12. mynd).
Mestur tegundafjöldi er um eða
rétt neðan við neðstu fjörumörk,
síðan fækkar tegundum smám
saman eftir því sem dýpra dregur og
birta dvínar.17,5 Almennt vaxa
þörungar dýpra fyrir opnu hafi en
inni á fjörðum, þar sem grugg
dregur úr birtu í sjónum. Fyrir opnu
hafi í Færeyjum vex til dæmis þéttur
þaraskógur víða niður á um 20 m
dýpi. Þar fyrir neðan þynnist hann
smám saman og síðustu þaraplöntur
hverfa á um 30 m dýpi. Þar sem þari
er þéttastur geta verið 20 til 40
stórþaraplöntur á fermetra. Á skjól-
sælum stöðum inrd á fjörðum er
stórþari hins vegar yfirleitt að mestu
horfinn á um 10 m dýpi og nær
sjaldan meiri þéttleika en sem
nemur 5 til 15 plöntum á fermetra.
Inni á fjörðum nær harður botn
oftast skammt niður í djúpið, en
fljótt tekur við leirbotn sem engir
þörungar vaxa á. Eftir því sem
lengra er farið inn í firði, þeim mun
grynnra er niður að leirbotni.
Þar sem er brim er allra mest
virðist stórþari ekki þola álagið, en
þar er marinkjarni, og stundum
hrossaþari, ríkjandi á fyrstu metrum
neðan fjöru. Báðar tegundimar hafa
sveigjanlegri stilk en stórþari og
einnig skiptir sennilega máli að
marinkjami er fljótur að nema land
og vex hratt þar sem hann nær
fótfestu.
Utan á stilkum stórþara vaxa
ásætur, bæði þörungar og dýr.
Yfirleitt em færri tegundir á stilkum
stórþara inni á fjörðum en úti á
S)
cd
6
«b
J2
I
p
Dvergþang
Pelvelia canaliculata
Steinskúfur
Cladophora rupestris
Klóþang
Ascophyllum nodosum
Reimaþang Himanthalia elongata Þunnaskegg Polysiphonia stricta
70 o 70 ' 70 f
60 OO 0 \ 0 60 cmro o 60
50 o o o o 50 000 o 50
40 40 o X O OO 0 o 40
30 Sp o 30 OO CD o o o 30
20 o o X 20 0 20
10 \ 10 O 0 —.—i—i—i—i—QO-iQirmx) 10
Purpurahimna
Porphyra umbilicalis
o
O tTtTlTO 030 00
o
o
o o
o
o
ŒDO
O
0123456789
0 123456789
0 123456789
Vaxandi skjólsæld -----------►
9. mynd. Dreifing nokkurra fjöruþörunga með tilliti til brimasemi. Á láréttum kvarða merkir 0 mesta brimasemi en 9 skjólsælustu
fjörurnar. Lóðréttur kvarði sýnir hlutfallslegt magn tegunda ífjörunni. Teiknað eftir Bruntse o.fl. 1999b (6).
52