Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 73

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 73
N áttúruf ræðingurinn Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Fréttir Örnólfur Thorlacius tók saman Tölvumynd af Dorian Gray í sögu Oscars Wilde, „Myndin af Dorian Gray", heldur söguhetjan æskuljóma srnum óbreyttum þótt árin færist yfir, en ellimörkin birtast í þess stað á málverki af honum, sem falið er uppi á hanabjálka. Nú er unnið að stafrænni útfærslu á þessari hugmynd á Accenture- rannsóknastofnuninni í Sophia Antipolis, nærri Nice í Suður-Frakklandi. Myndin birtist í líkams- stærð á heljarstórum, flötum flotkristalssjónvarpsskjá (LCD), sem tengdur er kerfi myndavéla og flóknum hugbiinaði. Kerfið er fóðrað með upplýsingum um lífsstíl þess sem myndin er af. Annars vegar eru til þess notaðar fjöl- margar myndavélar utan- og irtnanhúss, er skrá allar hreyfingar persónunnar - og ekki síður hreyfingarleysi. Þessu er fylgt eftir með spumingum um lífsvenjur, þar með um mat og drykk. Að því tilskildu að svarað sé rétt og heiðarlega á kerfið að geta dregið upp mynd af senni- legu útliti viðfangspersónunnar eftir fimm ár. Þegar þessi persóna sest framan við sjónvarpsskjáinn birtist fyrst spegilmynd, eins og hann eða hún lítur út þar og þá. Þegar svo er ýtt á takka blasir við önnur mynd, spásögn um útlitið fimm árum síðar að óbreyttum lífsvenjum. Þetta verður „eðlileg" spegilmynd, sem hreyfir sig og breytir svip með breyttu háttemi þess sem framan við spegilinn situr. Ut frá matarvenjum og líkamsbeitingu framreiknar tölvan breytta líkamsþyngd viðfangsins og bætir - ef við á - tilskildum fjölda kílóa á viðeigandi parta af myndinni. Annað forrit tekur til við andlitið. Ofneysla áfengis markar hmkkur í það, poka undir augun o.s.frv. Nokkuð vantar á að kerfið sé tilbúið en oddviti rannsóknastofunnar, Martin Illsey, vonast til að geta sýnt fmmgerð spáspegilsins á miðju þessu ári, ef vel tekst til með atferlisgreiningu og hugbúnað. Vonir standa til að einhverjir láti af hóflausum lífsstíl við það að sjá vofu lifnaðar síns varpað fram í ókominn tíma. Sjá „Through the looking glass" eftir Will Knight. New Scientist, 5.febrúar 2005, bls. 23. Steinaldarkettir Til skamms tíma töldu menn að Egyptar hefðu fyrstir manna alið heimilisketti, fyrir um 4000 ámm. Samkvæmt Degerbol1 var þar helgi á ljónum, sem gengu laus í hofunum, en þau vom óstýrilát og nokkur afföll urðu á prestum af þeirra völdum. Datt mönnum þá í hug að minni og meinlausari frændur ljónanna gætu gert sama gagn, og guðimir virðast hafa sætt sig við það. Nú hafa komið í ljós merki um kattahald fyrir nærri 10.000 ámm. Frá þeim tíma em styttur af köttum úr steini eða leir í Sýrlandi, Tyrklandi og Israel, og á Kýpur hafa bein af ketti fundist hjá rnanni, trúlega eigandanum, í gröf sem tekin var íyrir 9000 til 9500 ámm. Ljóst þykir að um að þetta hafi verið alikisa, því dýrið var jarðsett með viðhöfn ásamt manninum og engir kettir lifðu villtir á eyjunni - og raimar engin dýr af kattaætt2 Um tilganginn með kattahaldinu er fátt vitað. Kannski vom fyrstu kettimir einfaldlega hafðir sem gæludýr. Nærtækt er að hugsa sér að þeir hafi verið aldir til músa- veiða, en það er engan veginn ljóst. Rómverjar höfðu litla merði, frittur, til að veiða mýs, og ekki em heimildir um músaveiðiketti í Evrópu fyrr en síðar. I Grágás er getið um kattarbelgi sem verslunarvöru á íslandi. Heimildir: 1. Degerbol, Magnus 1962: Husdyr og mennesker. Munksgárd, Kaupmannahöfn. 2. Muir, Hazel 2004: "Stone Age cats made great pets." New Scientist, 17. apríl, bls. 13. Hómer gegn háþrýstingi Þýskir Kfeðlisfræðingar hafa komist að því að lestur klass- ískra ljóða getur haft góð áhrif á heilsuna. Þeir létu sjálfboðaliða gera eitt af þrennu - lesa upp lir Ódysseifs- kviðu Hómers, draga andann sex sinnum á mínútu, og loks var viðmiðunarhópur sem ekkert las og andaði eðlilega. I Ijós kom að ljóðalesturinn stuðlaði að vemlegri sam- hæfingu á öndun og hjartslætti, samhæfingu sem þykir holl hjartasjúklingum. Hæga, stýrða öndunin gerði nokkurt gagn, en ekki eins mikið og lesturinn, og í við- miðunarhópnum greindust að vonum engin merki samhæfii'igar. Við bætist að lesturinn vakti hjá lesendunum ánægju, en þeir sem tempmðu andardráttinn vom hundleiðir. En það er ekki sama hvað lesið er. Bragarhátturinn á Hómerskviðum, hexameter eða sexliðaháttur, er einkar hjartastyrkjandi. I tilrauninni lásu mennimir kviðumar í þýskri þýðingu þar sem bragarháttur frumkvæðanna hélst. Á Ítalíu komust læknar að því að lestur Ave Maria á latínu gagnaðist við að hægja á öndun og hjartslætti, einnig jóga-mantra þulur á fmmmálinu. Forstöðumaður þýsku tilraunanna, Dirk Cysarz, vonar að ljóðalestur geti læknað háþrýsting og sjúkling- arnir muni hafa gleði af meðferðimii. Sjá "Heartbeat poetry" eftir Nicole Garbarini. Scientific American, okt. 2004, bls. 13. 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.