Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 32
Náttúrufræðingurinn
Fréttir
Örnólfur Thorlacius tók saman
Hvenær fóru menn að breyta
LOFTSLAGINU?
Það er flestra álit að loftslag á jörðinni fari nú hitnandi
vegna aukningar á koltvíoxíði og fleiri gróðurhúsaloft-
tegundum af manna völdum, að þessi þróun hafi hafist
með iðnbyltingunni seint á 19. öld og færist nú í aukana
vegna sívaxandi útblásturs frá vélknxinum farartækjum.
Bandarískur haffræðingur og fyrrverandi prófessor í
umhverfisfræðum við VirginíuháskóJa, William F.
Ruddiman, telur að umsvifa manna hafi farið að gæta
mun fyrr í loftslagi jarðar, eða fyrir einum 8000 árum, og
skýringa megi leita í landbúnaði, sem þá var að breiðast
út. Þegar bændur í Evrópu og Asíu ruddu víðáttumikil
skóglendi imdir ræktarland jókst koltvíoxíð í lofti við það
að C02 losnaði úr trjánum, hvort sem þeim var eytt í eldi
eða skilin eftir til að rotna, auk þess sem skógamir bundu
ekki lengur koltvíoxíð við ljóstillífun. Metan, CH4, enn
máttugri gróðurhúsalofttegund, varð til þegar lífræn efni
úr gróðri rotnuðu í botnlögum flæðilanda hrísakranna.
Rök fyrir þessari tilgátu sækir Ruddiman einkum í
borkjama í ís á Suðurskautslandinu. Af þeim má greina
að bæði metan og koltvíoxíð hafi farið dvínandi í
gufuhvolfinu frá ísaldarlokum, fyrir rúmum 10.000 ámm,
þar til landbúnaður komst á skrið. Frá því fyrir um 8000
ámm mælist sívaxandi styrkur koltvíoxíðs í loftsýnum úr
jökulísnum og metankúrfan fór að beinast upp á við fyrir
einum 5000 ámm.
Skipulegar breytingar á afstöðu jarðar og sólar, einkum
á halla jarðmöndulsins, - en jörðin veltur líkt og
skopparakringla sem er að komin að því að stöðvast, einn
hring á 22.000 ámm (framsókn eða precession) - kalla fram
breytingar á veðurfari, sem meðal annars birtist í
reglubundnum sveiflum í C02- og CFþ-magni í fomum
loftsýnum í jökulís. I lok fyrri jökulskeiða ísaldar dró
vemlega úr magni þessara lofttegunda en nú ber svo við
að kúrfumar fara að beinast upp - koltvíoxíð fyrir átta og
metan fyrir fimm árþúsundum. Þetta rekur Ruddiman
til umsvifa bænda, og bendir meðal annars á það að á
tímum farsótta, svo sem þegar svarti dauði herjaði í
Evrópu á miðöldum, hafi dregið úr C02-magni í
borkjamasýnunum enda hafi landbúnaður þá að mestu
lagst niður á plágusvæðunum.
Ruddiman telur jafnvel að bændur hafi með um-
svifum sínum komið í veg fyrir upphaf nýs jökulskeiðs og
að þessi öra hlýnun muni halda áfram að minnsta kosti
næstu tvær aldirnar, en þá verði nýtanlegar birgðir
steingerðs eldsneytis í jörðu (kola og olíu) á þrotum.
Engu treystist hann að spá um það hvort sú kólnun á
loftslagi jarðar, sem á eftir komi, muni kalla fram nýtt
ísaldarskeið.
Sjá Hozv Did Humans First Alter Global Climate?
eftir William F. Ruddiman. Scientific American, mars 2005, bls. 34-41.
Bók um þetta efni eftir Ruddiman, Plozvs, Plagues and Petroleum: Hozv Humans
Took Control ofClimate, er íprentun hjá Princeton University Press.
Malaría eða krabbamein?
í Afríku, einkum á svæðum þar sem malaría er landlæg,
er í mönnum há tíðni gena, sem verja berendur sína
þessum skæða og oft banvæna sjúkdómi, en afbrigðilegu
genin ýta undir önnur mein og eru því fágæt þar sem
malaría herjar ekki. Kennslubókardæmi um þetta er
stökkbreytt gen, sem kallar fram sigðkomablóðleysi.
Menn, sem erfa það frá öðm foreldri, em lítt næmir fyrir
malaríu, en þeir sem arfhreinir em um genið em illa
haldnir af blóðsjúkdómi og verða fæstir gamlir.
Að vonum er þetta gen fátítt utan malaríusvæða, en
arfleifðin segir til sín í ameríkumönnum af afrískum
uppmna. Hjá svertingjum í Bandaríkjunum mælist tíðni
sigðkomagensins hærri en í hvítum samborgumm þeirra
en mun lægri en í frændum þeirra í Afríku, enda er líklegt
að tíðnin fari lækkandi með tímanum þar sem engin er
malarían.
Sums staðar í Afríku er allmikið um afbrigðilegt gen,
sem breytir fmmuhimnu rauðkomanna þannig að í hana
vantar tiltekið prótín, DARC. Fyrir vikið á malaríusníkill
af tegundinni Plasmodium vivax ógreitt um inngöngu í
blóðkomin.
Nú hafa vísindamenn í Ohio komist að því að DARC
dregur úr vexti krabbameinsæxla. Þetta kann að skýra
hvers vegna dánartala svartra bandarískra karla af
völdum blöðruhálskrabba er um tvöfalt hærri en sam-
bærilegra hvítra landa þeirra, en um 70% bandarískra
blámanna hafa í sér stökkbreytta genið.
Sjá Less malaria, more cancer. Nezv Scientist, 9. apríl 2005, bls. 15.
30