Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 12

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 12
Náttúrufræðingurinn Tími smitunar (fyrir pestilence). Og í kirkjubókum má lesa eftirfarandi: Útfaraskrá Penrith 1597 September 22. Andrew Hogson, aðkomumaður. Hér hófst plágan (Refsing Guðs) í Penrith. Nú leið nokkur tími án þess að fleiri létust úr plágu í Penrith og íbúar hafa trúlega verið farnir að vona að hættan væri liðin hjá. En hinn 14. október, 22 dögum eftir út- för Hogsons, er jarðsett Elisabeth Railton, dóttir Johns Railtons hnífa- smiðs. Andrew Hogson hafði búið hjá Railtonfjölskyldunni, hjónum og tveimur uppkomnum bömum, þar til hann lést. Hitt bamið, sonurinn John Railton, tók sóttina og hann var jarðaður 20. október. Fjómm dögum síðar, hinn 24. október, er útför húsbóndans, Johns Railtons, skráð í kirkjubækur. Húsfreyjan Mabel fór svo sömu leið en ekki fyrr en 4. nóvember. Öll lést Railtonfjölskyld- an af pest. I nóvember og desember eru 22 menn jarðaðir pestardauðir í Penrith, enginn í janúar og einn í febrúar.22 í lok 16. aldar ríkti „litla ísöldin" og vetur vom óvenjulangir og harðir. Húsakynni í Edendal vom köld eins og víðar á Bretlandi og eldsneyti og hlífðarfatnaður af skomum skammti, svo pestarsýkillinn breiddist lítt út. En svo magnaðist sóttin, náði há- marki um sumarið og hvarf loks í byrjun árs 1599 (13. mynd). í Penrith voru samkvæmt kirkjubókum að mati Scotts um 1350 íbúar fyrir pestina, og nær helmingur þeirra Sjúkdómseinkenni koma fram Bati eða andlát virðist hafa látist af hertnar völdum. Hinn 6. janúar 1599 er síðasta pláguútförin skráð í útfaraskrá Penrithborgar, og við færsluna standa þessi orð: „Hér laukplágunni." Vandamál Það vakti athygli Scotts, og ekki síður Duncans, hve langur tími leið á milli dauða Hogsons, sem bar smitið til Penrith, og Elisabethar Railton, sem fyrst smitaðist af honum. Þetta kemur ekki saman við reynslu martna af háttemi kýlapestar, þar sem meðgöngutími er stuttur, lík- lega ekki lengri en fimm dagar1' og smittíminn enn styttri. Þetta varð til þess að þau Scott og Duncan fóru að rannsaka svarta- dauðafaraldrana í Evrópu og upp- götvuðu þá margt af því sem hér er rakið. Áður en lengra er haldið skal stutt grein gerð fýrir fáeinum atriðum sem eirtkenna smitsjúkdóma. Meðgöngutími, biðtími og smittími Gangi allra smitsjúkdóma má skipta í þrjú tímaskeið, sem oft skarast. Lengd þeirra og innbyrðis afstaða fer eftir því hver sjúkdómurirtn er (14. mynd). Meðgöngutíminn líður frá því að einstaklingurinn smitast þar til eirtkenni sjúkdómsins koma í ljós. Á meðgöngutíma virðist sjúklingurinn með öðrum orðum heilbrigður. Annað skeið, sem líka hefst við smit- un, er biðtíminn. Þá er sýkillinn að fjölga sér í líkama sjúklingsins, sem er enn ófær um að smita aðra. Á eftir biðtíma tekur við smittími, þegar sjúkdómurinn getur borist til artnarra og smitað þá. Ef biðtími sjúkdóms er styttri en meðgöngutímirtn (sbr. 14. mynd), verður sýktur einstaklingur smit- andi áður en einkenni sjúkdómsins koma í ljós og hartn getur því óvit- andi smitað aðra. í öðrum sjúk- dómum verður sjúklingurinn ekki smitandi fyrr en einkenni sjúk- dómsins eru komin fram. Þetta dregur úr líkunum á smiti meðal manna sem þekkja gang sjúkdóms- ins. Margir algengir sjúkdómar smit- ast frá martni til manns áður en sjúkdómseinkenni gera vart við sig, svo sem mislingar, hettusótt, rauðir hundar og hlaupabóla. Kíghósti og bamaveiki eru aftur á móti dæmi um sjúkdóma þar sem biðtíminn er lengri en meðgöngutíminn, svo smit berst ekki fyrr en eftir að smitberinn er orðinn veikur. Meðan barnaveiki var algeng dánarorsök barna gat glöggur læknir stöðvað útbreiðslu sýkinnar með því að setja sjúk börn í sóttkví strax og sjúkdómsgreining var staðfest. Sagan lesin úr kirkjubdkum Penrithborgar Þau Scott og Duncan röktu smitið á milli einstaklinga í Penrith í upphafi faraldursins haustið 1597 út frá kirkjubókum og komust þannig að því hve langt leið frá smitun til andláts sjúklings. Margir þeir sem pláguna tóku sömdu erfðaskrá þegar þeir urðu sýkinnar varir og út frá því, og hvenær sjúklingur hafði smitast, mátti reikna meðgöngutíma plágunnar hjá þessum mönnum. Útkoman reyndist þessi: • Biðtími: 10-12 dagar. • Smittími áður en einkenna veikinnar verður vart: 20-22 dagar. • Meðgöngutíminn er þar með um 32 dagar. • Meðaltími frá því að sjúkdóms- Biðtími Smittími 14. mynd. Gangur smitsjúkdóms sem berst beint á milli manna. Tíminnfrá smitun þar til maðurinn veikist kallast meðgöngutími. Á biðtíma getur hann ekki smitað aðra. h Þessi tala er sótt til Scotts og Duncans. Jón Steffensen19 tilgreinir meðgöngutíma pestar sem 2-12 daga en oftast skemmri en viku. Karl Skírnisson20 telur að meðgöngutíminn sé „yfirleitt 2-7 dagar og að minnsta kosti helmingur þeirra sem smitast deyr eftir 2-4 daga". 10 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.