Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 71

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 71
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Cosmochemistry, IAGC) voru sett á stofn 1967, en árið 2004 var nafninu breytt í International Association for GeoChemistry með óbreyttri skammstöfun og er íslenskt heiti samtakamra eftir það Alþjóðasam- tök um jarðefnafræði. Innan samtak- anna starfa nú átta vinnuhópar (e. working groups). Halldór Ármanns- son hjá Islenskum orkurannsóknum er nú í stjórn þess vinnuhóps sam- takanna sem fjallar um „Samspil bergs og vatns" (Water rock inter- action). Þessi vinnuhópur heldur vísindaráðstefnu á þriggja ára fresti. Sigurður R. Gíslason hjá Jarð- vísindastofnun Háskólans er í vinnuhópi sem fjallar um „Jarðefna- fræði yfirborðs jarðar" (Geo- chemistry of the Earth's surface) og sá vinnuhópur heldur einnig vísindaráðstefnu á þriggja ára fresti. Alþjóðasamband um kvarter- jarðfræði (International Union for Quaternary Research, INQUA) var sett á stofn 1928. Sambandið heldur ráðstefnur reglulega. Islendingar hafa tekið óbeinan þátt í starfi ýmissa nefnda á vegum sambands- ins, á seinni árum einkum Jón Eiríksson hjá Jarðvísindastofnun Háskólans. Full ástæða er til þess að íslendingar gerist formlegir aðilar að þessu sambandi og þá fyrir atbeina Jarðfræðafélags íslands. Framkvæmdanefnd um jarð- fræðikortlagningu heimsins (Com- mission for the Geological Map of the World, CMW) var komið á fót 1881. Þessi nefnd hefur haldið sjálf- stæði sínu en er þó í tengslum við Alþjóða jarðfræðisambandið. Islend- ingar hafa ekki formlega verið aðilar að þessari framkvæmdanefnd, en hafa nokkrum sinnum lagt til efni um ísland í yfirlitskort sem út hafa komið á vegum nefndarinnar. Helgi Torfason hjá Náttúrufræðistofnun íslands hefur undanfarin ár verið helsti tengiliður Islendinga við nefndina. Bandaríska jarðeðlisfræðisam- bandið (American Geophysical Union, AGU), sem var sett á fót 1919, er núorðið frjálst samband rúmlega 41.000 jarðvísindamanna og stúdenta í 130 þjóðlöndum. Þrátt fyrir nahúð eru semiilega í því fleiri jarðfræðingar en jarðeðlisfræðingar, þeirra á meðal allmargir Islendingar. Sambandið heldur tvær ráðstefnur á ári í Bandaríkjunum. Á ráðstefnuna í desember 2004, sem haldin var í San Francisco, komu rúmlega 10.000 gestir. Alþjóðasamtök um jarðhita, sem einnig hafa verið nefnd Alþjóða jarðhitasambandið (International Geothermal Association, IGA), voru sett á stofn 1988. Alþjóðasamtök um jarðhita eru frjáls samtök jarðhita- félaga, stofnana, fyrirtækja og ein- staklinga í 65 löndum. Samtökin halda alþjóðlega jarðhitaráðstefnu á fimm ára fresti. Samorka, samtök raforku-, hita- og vatnsveitna, sér um rekstur aðalskrifstofu samtak- anna 2005-2010 og framkvæmda- stjóri þeirra er Valgarður Stefánsson. Þessi samtök eru ekki í tengslum við fyrrgreind sambönd og samtök. ÁLÞJÓÐA JARÐFRÆÐU RÁÐSTEFNAN 2008 Hugmyndin um að Alþjóða jarðfræðiráðstefnan yrði haldin í Osló 2008 fæddist hjá Norðmönnum og kynntu þeir hana á ráðstefnuimi í Rio de Janeiro árið 2000. Þótt tillagan hafi upprunalega verið lögð fram án verulegs samráðs við hinar Norður- landaþjóðimar hlaut hún fljótt fullan stuðning þeirra, enda var talið eðlilegt að ráðstefnan yrði haldin á vegum allra fimm landanna. Sá háttur hefur verið hafður á að eitt eða fleiri lönd lýsa yfir áhuga sínum á að hýsa jarðfræðiráðstefnuna átta ámm áður en hún er haldin, en síðan er ákveðið með atkvæðagreiðslu fjómm árum áður hvar ráðstefnan skuli vera. Norðurlönd hafa tvisvar áður séð um Alþjóða jarðfræðiráðstefnuna, árið 1910 í Stokkhólmi og 1960 í Kaupmannahöfn, sjá 1. töflu. Ráð- stefnan 1960 varð jarðfræðirann- Nr. Ár Land Borg 1. 1878 Frakkland París 2. 1881 Ítalía Bologna 3. 1885 Þýskaland Berlín 4. 1888 Stóra-Bretland London 5. 1891 Bandaríkin Washington 6. 1894 Sviss Zúrich 7. 1897 Rússland Sankti Pétursborg 8. 1900 Frakkland París 9. 1903 Austurríki Vín 10. 1906 Mexíkó Mexíkóborg 11. 1910 Svíþjóð Stokkhólmur 12. 1913 Kanada Toronto 13. 1922 Belgía Brussel 14. 1926 Spánn Madríd 15. 1929 Suður-Afríka Pretoria 16. 1933 Bandaríkin Washington Nr. Ár Land Borg 17. 1937 Sovétríkin Moskva 18. 1948 Stóra-Bretland London 19. 1952 Alsír Algeirsborg 20. 1956 Mexíkó Mexíkóborg 21. 1960 Norðurlönd Kaupmannahöfn 22. 1964 Indland Nýja Dehlí 23. 1968 Tékkóslóvakía Prag 24. 1972 Kanada Montreal 25. 1976 Ástralía Sydney 26. 1980 Frakkland París 27. 1984 Sovétríkin Moskva 28. 1989 Bandaríkin Washington 29. 1992 Japan Kyoto 30. 1996 Kína Bejing 31. 2000 Brasilía Rio de Janeiro 32. 2004 Ítalía Flórens 1. tafla. Alþjóða jarðfræðiráðstefnurnar. 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.