Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 13
6. mynd. Hraungjóta; burkninn er skollakambur. - An opening to a hole in the lava field;
thefern /'.vBlechnum spicant. Ljósm./photo Á.H.B. (16. júlí 1999).
Plagiothecium cavifolium (holtaglit)
Pohlia spp. (skartmosar)
Polytrichastrumformosum (kjarrlubbi)
Polytrichum juniperinum (jarphaddur)
Ptilidium ciliare (móatrefja)
Radula complanata (skorusepi)
Rhizomnium pseudopunctatum
(heiðafaldur)
Rhytidiadelphus loreus (urðaskraut)
Saelania glaucescens (blámosi)
Sphagnum subnitens (fjóluburi)
Timmia bavarica (gjótutoppur)
Weissia controversa (hagahnýsill)
Sú tegund sem kom skemmtilegast á óvart
var Fissidens osmundoides (vætufjöður), en
hún óx næst glómosa og sums staðar rfktu þær
saman. Þetta er einmitt algengasta fylgitegund
glómosa annars staðar á Norðurlöndunt ásamt
lifrarmosanum Trichocolea tomentella; hann
fannst þó ekki, en ekki er loku fyrir það skotið
að hann geti leynst þama.
Að sjálfsögðu er ofangreindur listi ekki
tæmandi, því að allmargar aðrar tegundir
vaxa á svæðinu. Tíminn, sem staldrað var
þarna við, nægði hvergi til þess að kanna
svæðið nema að mjög litlu leyti, og enn
hefur ekki verið unnið úr öllum efniviði sem
var safnað. Óhætt er samt að fullyrða að
jarðhitastaður þessi sé meðal sérstæðustu
búsvæða hér á landi og er ótvírætt verður
ítarlegrar könnunar, hafi einhver bolmagn til
þess að kosta hana. Sem stendur er staðnum
engin hætta búin af átroðningi, enda utan
alfaraleiðar, en samt er nauðsynlegt að vera
á varðbergi.
■ ÞAKKARORÐ
Það er Hauki Sveinbjörnssyni á Snorra-
stöðum að þakka að höfundur rataði í
Þjófliellisrjóður. Pálína Héðinsdóttir bóka-
safnsfræðingur á Náttúrufræðistofnun
Islands var höfundi sem oft áður innan
handar við að útvega heimildir. Bjarni Rich-
ter tók smásjármyndir. Guðrún Gísladóttir
75