Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 16

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 16
mann dönsku sjókortastofnunarinnar. I þessu merka riti er að finna hafnartíma helstu hafna á landinu en engar flóðtöflur. I síðara leiðbeiningarriti fyrir farmenn (Den islandske Lods, 2. bindi, Khöfn 1898) er auk hafnartíma fjölmargra staða birt flóðtafla fyrir einn stað, Stykkishólm. Sú taila sýnir flóðtíma dagsins eftir hágöngutíma tungls, fyrir hverja heila stund í hágöngutíma. ■ töflur kommandörs HAMMERS Flóðtöflur fyrir Island, með nútímasniði, munu fyrst hafa birst í íslandsalmanakinu 1904, þ.e. í Almanaki Háskólans og þá um leið í Almanaki Þjóðvinafélagsins. Töflumar voru tvær og var önnur þeirra spá urn árdegisháflóð í Reykjavík árið urn kring en hin taflan sýndi misrnun á flóðtíma í Reykjavík og 42 stöðum öðrum kringum landið. Um þessar nýju töflur segir svo í almanakinu: „Yfirmaðurinn á varðskipinu við Island 1902 hefir samið og skýrt frá heimildar- atriðum þeim, sem töflur þessar fela í sér. Þau eru samin aðallega eftir athugunum, sem íslenskir athugarar gerðu sama árið á þessum stöðum." Þessi klausa fylgir flóðtöflum almanaksins allt fram til ársins 1923. Ef ekki væri við aðrar heimildir að styðjast, værum við næsta ófróð urn það hvernig þessar töflur voru reiknaðar. En Þjóðvinafélagsalmanakið fyrir árið 1904 geymir, auk flóðtöflunnar fyrir 1904, sérstaka skrá yfir háflóð í Reykjavík 1903 sem nær yfir síðustu mánuði þess árs. Skráin er sögð eftir „kommandör R.G. Ham- mer“ og eins og lesandinn rennir sjálfsagt grun í er það einmitt yfiiTnaðurinn sem fyir er getið. Svo heppilega vill til að varðveist hefur greinargóð skýrsla sem Hammer skip- herra sendi danska flotamálaráðuneytinu 5. mars 1902. Þessi skýrsla lýsir mælingum sem Hammer stjórnaði við íslandsstrendur árið 1901, útreikningum hans og niðurstöðum. Fer ekki á milli mála að þetta er sá grunnur sem fyrstu flóðaspár almanaksins voru reistar á. Skulu nú rakin nokkur atriði úr skýrslu Ham- mers. Skonnortan Díana, sem Hammer stjórn- aði,komtil íslandshinn ló.júní 1901 og var hér við land til 8. september, aðallega við dýptarmælingar en einnig við mælingar á sjávarstöðu. Síðarnefndu mælingarnar fóru fram samfellt frá 25. júní til 9. ágúst, í 45 daga. Settur var upp sjávarstöðumælir við endann á Zimsensbryggju í Reykjavík og lesið af mælinum á klukkustundarfresti. Á daginn sá skrifstofumaður hjá Zimsen um aflesturinn en á nóttunni næturvörður lögreglunnar í Reykjavík. Hammer vann síðan úr mælingum þessum og setti niður- stöðumar fram í töflum og línuritum. Ekki er rúm til að rekja allar niðurstöður Hammers hér og verður því aðeins stiklað á stóru. Hið fyrsta sem Hammer gerði var að ákvarða hafnartíma Reykjavíkur. Niður- staðan, 4 stundir og 58 mínútur, var í góðu samræmi við eldri mælingar en mun ná- kvæmari. Við samanburð á tíma háflóðs og háfjöru í Reykjavík þóttist Hammer sjá að fjaran væri því sem næst mitt á milli flóðanna á undan og eftir. Þá gerði Hammer töflur sem sýndu hvernig finna mætti flóðtímann þegar tungl væri hvorki fullt né nýtt heldur einhvers staðar þar á milli og áhrif tungls og sólar því misverkandi. Þetta olli fráviki frá hafnar- tímanum um allt að 35 mínútur í aðra áttina og 55 mínútur í hina, frá +35 mín. til -55 mín. samkvæmt útreikningum Hammers. í þriðja lagi reiknaði Hammer út töflu sem sýndi hvaða áhrif mismunandi fjarlægð tungls hefði á flóðtímann. Þar var um að ræða leiðréttingu á bilinu frá +22 mín. til -25 mín. Loks setti Hammer upp töflu um mismun flóðtíma í Reykjavík og 37 öðrum stöðum á landinu. Þar studdist hann yfirleitt ekki við eigin mælingar heldur eldri upplýsingar sem hann taldi misjafnlega áreiðanlegar. Þó segir hann frá eigin athugunum í Hafnarfirði og telur sig hafa fundið 50 mínútna mun á flóðtíma þar og í Reykjavík. Sætir það nokkurri furðu, því að sú tala er fjarri lagi; munurinn er ekki umtalsverður. Þessi tafla Hammers er alls ekki sama taflan og sú sem síðan birtisl í almanakinu 1904. Bendir það til 78

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.