Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 19

Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 19
lögðu hönd á plóginn, sífellt fullkomnari vélar voru smíðaðar og þegar fram í sótti tóku Bretar að sér útreikninga á sjávarfalla- spám fyrir fjölda hafna um allan heirn. Aðferð Thomsons var í því fólgin að greina orsakir sjávarfallanna í einfaldar sveiflur þar sem hverri sveiflu er lýst með tveimur stuðlum. Annar stuðullinn táknar stærð sveiflunnar en hinn upphafsstöðu hennar á tilteknum tíma. Stuðlarnir eru reiknaðir út frá athugunum á sjávarföllum á hverjum stað og þær athuganir þurfa að ná yfir sem lengstan tíma, helst ekki minna en eitt ár. Margar af sveiflunum eru svo smáar að unnt er að sleppa þeim án þess að spáin raskist að marki. Mælingar Hant- mers árið 1901 hefðu nægt til að finna bráðabirgðagildi fyrir þrjár helstu sveifl- urnar í Reykjavík, en eins og áður segir voru niðurstöður Hammers aðeins nýttar að hluta og má því segja að spárnar hafi tekið tillit til tveggja sveiflna. Eiginlegir sveiflustuðlar sjávarfalla við Island voru ekki ákvarðaðir fyrr en í heimstyrjöldinni síðari, að breski sjó- herinn mældi sjávarhæð á sex stöðum hér við land. Var það árið 1940. Mælt var í allt að mánaðartíma á hverjum stað og á þeirn grundvelli ákvarðaðir stuðlar fyrir níu sveiflur. Sjávarfallaspár fyrir Reykjavík, reiknaðar í Bretlandi, birtust á næstu árum í töflum breska flotamálaráðuneytisins (Admiralty Tide Tables). Þessar töflur voru mun nákvæmari en þær töflur sem birtust á sama tíma í Almanaki Háskólans og Sjómannaalmanakinu þar sem enn var stuðst við gömlu reikniaðferðina. At- hugun á tölum fyrir janúarmánuð 1950 sýnir að meðalskekkjan í íslensku töflun- urn er 10 mínútur en í þeirn bresku aðeins 4 mínútur. Hámarksskekkja í íslensku töfl- unum er 24 mínútur en 9 mínútur í þeim bresku. Með skekkju er hér átt við frávik frá nákvæmustu spá sem nú er unnt að gera. Engin breyting varð til batnaðar á íslenskum sjávarfallatöflum fyrr en á sjötta áratugnum. Þá voru Sjómælingar íslands komnar til sögunnar og höfðu fengið fyrsta síritandi sjávarhæðarmælinn sem kornið var fyrir á Ingólfsgarði. Sá rnælir var í notkun allt árið 1951. Eftir þeirn mælingum reiknaði sjávarfallastofnunin í Bretlandi nýja sveiflu- stuðla og síðan töflur um sjávarföll sem Sjómælingar íslands gáfu út árið 1954. Þar var birt spá um hvort tveggja, flóð og fjöru, og auk tímans var getið um sjávarhæð eins og gert hafði verið í töflum breska flota- málaráðuneytisins. Utdráttur úr þessum nýju töflum var birtur í Almanaki Háskólans. Þá var aftur farið að tilgreina tölur upp á eina mínútu í stað flmm. Lengi vel sýndi Almanak Háskólans aðeins árdegisflóðið, en árið 1971 var síðdegisflóðinu bætt við. Sama ár tók Sjómannaalmanakið að birta töflur Sjó- mælinganna í heild sinni. Arið 1955 eignuðust Sjómælingarnar nýjan mæli og hófst samfelld skiáning með honum árið 1956. Síðari töflur Sjómælinga íslands styðjast við stuðlagreiningu ársins 1963 og meðalhæð sjávar 1956-1975. ■ forrit wallners Eftir að tölvuöldin gekk í garð og Háskóli íslands fékk sína fyrstu tölvu (1964) var farið að ræða um að reikna sjávarföllin hérlendis, enda var nú ekki lengur þörf fyrir sérhannaðar reiknivélar til þess verks. Samning tölvuforrits í þessu skyni var þó tímafrekt verkefni og dróst sú framkvæmd á langinn. Útreikningar sjávarfalla fóru því fram í Bretlandi enn um hríð. Erlendis komu fram tölvufoiTÍt til sjávarfallareikninga og var kanadískt forrit til athugunar við Háskóla íslands um skeið (1968-1969). Jónas Elíasson verkfræðingur lagaði það forrit að íslenskum aðstæðum fyrir Sjó- mælingar íslands og var það notað til samanburðar við eldri mælingar, en ekkert varð af notkun þess við spár fram í tímann. Arið 1987 fékk höfundur þessarar greinar fregnir af álitlegu forriti sem Bandaríkja- maðurinn Edward P. Wallner hafði samið. Fyrsta útgáfan af því forriti var prófuð á Raunvísindastofnun Háskólans 1988. For- ritið reyndist vel og var næsta útgáfa þess tekin í notkun við sjávarfallareikninga 81
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.