Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 22
hæðartölunum. Mynd 3a sýnir frávikin frá
töflum Sjómælinganna en mynd 3b frávikin
frá forriti Olafs. Arssveiflan sem þarna
kemur fram mun aðallega stafa af áhrifum
veðurfars. Er svo að sjá sem viðkomandi
sveiflustuðlar hjá Olafi séu nær lagi en þeir
sem áður hafa verið notaðir, því að minna
ber á árssveiflunni í mynd 3b en í mynd 3a.
Sá sveifluþáttur sem líklega skiptir mestu
máli í þessu samhengi nefnist árleg sól-
sveifla (táknuð með skammstöfuninni ,,Sa“),
en stærð hennar er mun minni hjá Ólafi en í
reikningum Sjómælinganna.
Rétt er að taka fram að stundum var erfitt
að lesa af riti sjávarhæðarmælisins, m.a.
vegna áhrifa vissra sjávarsveiflna. Eykur
það dreifingu punktanna, en jafnmikið á
öllum myndunum. Stærstu frávikin stafa
sennilega af þess háttar eða öðrum aflestrar-
villum.
Af myndunum má ljóst vera að sjávar-
fallaspám er alls ekki treystandi upp á
mínútu í tíma eða upp á sentimetra í hæð.
Vissara er að gera ráð fyrir að tímaskekkjan
geti numið 25 mínútum eða svo og hæðar-
skekkjan 30 cm. Skekkjurnar stafa aðallega
af áhrifum veðurs sem ekki er unnt að sjá
fyrir þegar spáin er reiknuð. Vegna þessarar
óvissu er sjávarhæð ekki lengur sýnd í
sentimetrum, hvorki í töflum Sjómælinga
íslands né í Almanaki Háskólans. Nú er látið
nægja að tilgreina hæðartölur með tíu
sentimetra nákvæmni (0,1 m). Töflur Sjó-
mælinganna sýna hæð allra sjávarfalla en í
Almanaki Háskólans hefur hæðin aðeins
verið sýnd við háflóð í stórstreymi.
Að lokum skal þess getið, þó að það snerti
ekki meginefni þessarar greinar, að athug-
anir Ólafs Guðmundssonar á sjávarhæð í
Reykjavíkurhöfn árin 1956-1989 leiddu til
þeirrar niðurstöðu að sjávarborð hafi
hækkað jafnt og þétt um 2,4 mm á ári, eða
sem svarar 24 cm á öld. Fyrri athuganir
Sjómælinga Islands höfðu bent til heldur
meiri breytingar, 3,5 mm á ári (35 cm á öld).
■ ÞAKKARORÐ
Gunnari Bergsteinssyni, fynverandi for-
stöðumanni Sjómælinga íslands, þakka ég
margar gagnlegar ábendingar og upp-
lýsingar. Sérstaklega er ég honum þakklátur
fyrir að láta mér í té ljósrit af handskrifaðri
skýrslu R. Hammers skipherra frá árinu
1902. Pálmi Ingólfsson las af línuritum Sjó-
mælinganna 1993 og 1995 og kann ég
honum þakkir fyrir þá aðstoð.
■ HEIMILDIR
Admiralty Tide Tables. Hydrographer of the
Navy, Taunton.
Almanak handa íslenskum fiskimönnum 1914-
1924. Stjórnarráðið, Reykjavík.
Beckman, Natanael & Kristian Kálund 1914-16.
Alfræði Islensk, II. bindi. Rímtöl, Kaup-
mannahöfn.
Den islandske Lods, 2. bindi. Det kongelige
Spkaart-Archiv, Kaupmannahöfn 1898.
Hammer, R. 1902. Beskrivelse af Opmaalingen
under Island og Færöerne Sommeren 1901.
Kaupmannahöfn.
Hammer, R.G. 1904. Skrá yfir háflóð í Reykja-
vík 1903. Almanak Hins íslenska þjóð-
vinafélags 1904.
Islenskt sjómannaalmanak 1926-. Fiskifélag
Islands, Reykjavík.
Löwenörn, Poul de 1788-1818. Beskrivelse over
den islandske Kyst og de derværende Havne.
Kaupmannahöfn.
Sjávarföll við ísland 1954—. Sjómælingar íslands,
Reykjavík.
Sjómannaahnanak 1925. Stjórnarráðið, Reykja-
vík.
Töflur um flóð. Almanak Háskólans (íslands-
almanakið) 1904-
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Þorsteinn Sæmundsson
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 5
107 Reykjavtk
Netfang: halo@raunvis.hi.is
84