Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 24
1. inynd. Tönninfrá Apolakkia-mynduninni. a) Séðfrá hlið. Glerungurinn virðist ótrúlega
heillegur, þótt ummyndun hafi gert hann dökkan. Mörkin þar sem tannholdið lá sjást
greinilega. b) Stœkkun er sýnir rijflaða innri egg tannarinnar frá hlið. c) Séð beint á
eggina er líkist venjulegu sagarblaði. Þetta hefur vœntanlega auðveldað sverðkettinum
að skera sundur sinar og vöðva bráðarinnar. - The toothfrom Apolakkia. a) Sideview. The
enamel seems very well presen’ed, even though it is somewhat altered. Tlie line where tlie
soft tissue ofthe gum lay, is visible. b) Enlargement ofthe tooth, showing the serrations on
the anterior edge. c) Direct view of the serrations on the anterior edge. The zig-zag mor-
phology ofthe serrations has probably made it easierfor the cat to cut through flesh and
tendons.
I fínkornaðri hluta Apolakkia-myndunar-
innar er mikið af ferskvatnsskeljum og snigl-
um. Auk þess hefur fundist nokkuð af
steingerðum trjám og beinum hryggdýra.
Þykkt myndunarinnar er um 500 metrar.
Þarna var að öllum líkindum fenjasvæði með
einstaka vötnum, bugðóttum ám og lundum,
jafnvel smáskógum (Meulenkamp o.íl
1972).
Hryggdýr þau sem hafa fundist þarna
tilheyra a.m.k. níu ættum spendýra og þar af
tveim ættum rándýra, þ.e. hundum (Cani-
dae) og hýenum (Hyanidae). Algengastir
voru þó hestar (Hipparion) og krónhirtir
(Cervus) (van de Weerd o.fl. 1982).
Apolakkia-myndunin er talin vera frá mið-
plíósen1 og virðist fánan vera sambland af
asískum og evrópskum tegundum. Ródos
var landfast Tyrklandi á þessum tíma og því
ekki undarlegt að finna þetta samfélag
tegunda (van de Weerd o.fl. 1982).
Ekki er einfalt að ákvarða dýrategund á
grundvelli einnar tannar, sem þar að auki er
ekki heil. Á mið-plíósen voru aðeins tvær
ættkvíslir sverðkatta í Evrópu og Asíu,
Homotherium og Megantereon (4., 5. og 6.
1 Jarðsögutímabilin, skýringarmynd.
-0,01 Pleistósen ii | o | »© »© m oo & Jj i 'S in »- ci is rtt -o </"> 7! ft, ( JS J »o ? U 1 cl, 1 1 1 1 </ r, r f o inilljón. ár. 7 l n y
Kviirtcr Tertíer Krít Júra Trías
Nýlífsöld Miðlífsöld
Jarðsögutímabil
86