Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 25
mynd). Megantereon var
rýtingstenntur köttur, með
vígtennur sem voru þykkari
og beinni en sú tönn sem hér
um ræðir. Auk þess voru
tennur Megantereon aldrei
rifflaðar. Vígtennur Homo-
therium voru hinsvegar
þynnri og krappari og með
rifflum. Því liggur beint við að
draga þá ályktun að tönnin sé
úr Homotherium.
Á þessum tíma voru nokkr-
ar tegundir Homotherium á
vappi fyrir botni Miðjarðar-
hafs, t.d. H. nestianus, H.
ultimus, H. davitasvili, H.
crenatidens og H. darva-
sicum (Dybka 1989, Sharapov
1989). Þar sem þessar tegundir
eru allar náskyldar hafa þær
verið settar undir einn hatt
seni Homotherium crenat-
idens (Sharapov 1989).
Eftir því sem best verður séð
hefur aðeins einu sinni áður
fundist sverðköttur á Ródos,
en það var Machairodus aph-
anistus frá mið- til síð-míósen
(Sondar o.fl. 1986). Sverðkettir virðast ekki
hafa fundist á öðmm eyjum í austurhluta
Miðjarðarhafsins.
Ólíklegt verður að teljast að sverðketlir
hafi lifað af á Ródos eftir að það slitnaði frá
Tyrklandi, en Ródos er meðal annars þekkt
fyrir dvergffla sem lifðu þar eftir að það varð
eyja. Því er hugsanlegt að sverðkettir hal'i
einnig lifað þar fram á pleistósen.
2. mynd. Afsteypa í réttri stœrð af höfuðkúpu sverðkattarins
Smilodon californicus, er var uppi fyrir um 10þúsund árum
í Norður-Ameríku. Kvarðinn er 10 cm. Fundin í
tjörupyttunum íLos Angeles. - A life-size cast ofthe saher-
toothed cat Smilodon californicus wlxich lived in North
America, ca. 10,000 years ago. Found in the tarpits of Los
Angeles. The scale is 10 cm.
Rhodos
Istrios
Apolakkta
Apolakkia myndunin
0 10 km
3. mynd. Útbreiðsla Apolakkia-myndunar-
innar á suðvesturhluta Ródos. - Distribu-
tion of the Apolakkia formation, SW
Rhodes.
87