Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 27

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 27
Leifar hans hafa fundist í N-Ameríku, Evrópu, Asíu og Afríku (6. mynd). 1 N-Ameríku þróaðist Megantereon síðan yfir í ættkvísl þeirra sverðkatta sem urðu stærstir og þekktastir þeirra allra, eða Smilodon (1., 4. og 5. mynd). Þarlifði hann ásamt frændum sínum Homotherium og Dinobastis (Rawn-Schatzinger 1992). Smilodon er eini sverðkötturinn sem komst til S-Ameríku. Hann fyllti þar í skarðið eftir sverðtennta pokadýrið Thyla- cosmilus sem hvarf á síð-plíósen. Sverðkettir (Machairodontinae) dóu fyrst út í Evrasíu á mið-pleistósen, en þó voru nokkrir sem lifðu af fram á síð- pleistósen á Englandi. Sverðkettirnir í N- Ameríku lifðu fram að mörkum pleistósen og hólósen (fyrir 10-11 þúsund árum) (Thenius 1980). Ekki er vitað með vissu hvers vegna sverðkettir dóu út, en orsakanna er líklega að leita í því hversu sérhæfðir þeir voru í að lifa á stórri bráð. Flestar hinna stóru, hægfara plöntuætna hurfu af sjónar- sviðinu á mið- og síð-pleistósen vegna breytinga í veðurfari, sem aftur ollu breyt- ingum í gróðurfari (Kurtén 1968, 1971, Kurtén og Anderson 1980, Thenius 1980). Þetta þyddi að hinir sérhæfðu sverðkettir, sem lifðu á þeim, dóu einnig út. Maðurinn gæti þó einnig hafa átt þátt í aldauða kattanna í N-Ameríku. Þar veiddu forfeður okkar stórar plöntuætur, t.d. fornfílinn Mastodonta (Stanley 1989) og lentu þar með í santkeppni við sverðkettina. Mjög líklegt er að menn hafi einhvern tíma komist í tæri við sverðketti þótt engar óyggjandi sannanir séu fyrir því. 5. mynd. Svona litu lielstu tegundir sverðkatta nokkurn veginn út. lnnbyrðis stœrðarhlutföll eru nokkuð rétt. Smilodon var á stærð við nútímaljón en mun stœltari. Litur dýranna er ágiskun, en byggist á líklegum lifnaðarháttum. Homotherium, Megantereon og Smilodon eru gulleitir vegna þess að líklegt kjörlendi þeirra voru grasivaxnar steppur, en Machairodus er hinsvegar dekkri sökum þess að líklegt kjörlendi lians var skógarþykkni. - A probable reconstruction of some of the saber-toothed cats. Relative sizes are true. Smilodon vvö.v the size of a modern lion, butfar more muscular. The colour oftlre animals are guesses, based on their probable lifestyles. Homotherium, Megantereon and Smilodon are yellowish, due to hunting in savannahs and steps. Machairodus is darker as it was more of a forest and underbrush hunter. 89

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.