Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 30

Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 30
skinnungum, þ.á m. nashyrningum. Því var dregin sú ályktun að Smilodon, jafnt sem minni sverðkettir, hafi aðallega étið mammúta og önnur ranadýr (Rawn-Schatz- inger 1992). Veiðar á mammútum hafa ekki verið áhættulausar, jafnvel þótt um unga bráð hafi verið að ræða. Sverðkötturinn þurfti að geta lagt að velli stóra bráð (e.t.v. 1-2 tonn) án þess að láta sjálfur lífið eða skaðast alvarlega. Þar hefur hin mikla þyngd hans og feikilegu tennur komið að góðum notum. Menn hafa löngum velt vöngum yfir því hvernig sverðkettir beittu þessum stóru tönnum. Vinsælasta hugmyndin fram að þessu hefur verið sú að þeir hafi notað þær til að stinga eða skera dýrið í hálsinn eða kviðinn. Kettirnir höfðu sérstaka vöðva sem festir voru aftan í höfuðkúpuna og gerðu þeim kleift að þrýsta höfðinu af krafti niður á við og reka þannig tennurnar djúpt í bráðina. Aðeins var hægt að beita tönnun- um að fullu ef kjafturinn var vel opinn. Því gátu kettimir glennt ginið allt að 95-120° (2. mynd). Nýleg athugun (Akersten 1985) leiddi í Ijós að líklega notaði Smilodon neðri kjálkann sem ankeri til að reka tennurnar á kaf, líklega í kvið bráðar, og á þann hátt flá stykki úr bráðinni (7. mynd). Tennurnar þoldu mikið álag að framan og aftan en ekki frá hliðunum. Því var mjög áhættusamt að beita þeim á háls, fullan af vöðvum, sinum og beinum, auk þess sem bráðin var á hreyfingu. Fáar þeirra sverðtanna sem hafa fundist hafa brotnað meðan dýrið var lifandi. Þær bera einnig mjög fá merki slits. Þetta gæti bent til þess að þeim hafi aðeins verið beitt þar sem bráðin var veikust fyrir. Veiðar sverðkatta kunna að hafa farið fram á eftirfarandi hátt: Kattardýrið bíður eftir því að einn af yngri mammútunum rölti svolítið í burtu frá hjörð- inni. Það dylst í gróðrinum og læðist að bráðinni, eins nálægt og mögulegt er. Skyndilega stekkur kötturinn á unga mamm- útinn og notar þyngd sína og hraða til að velta óviðbúinni bráðinni um koll. Hann keyrir síðan tennurnar á kaf í kvið mammúts- ins og rífur úr honum stykki, en við það skerast margar æðar í sundur. Næst dregur sverðkötturinn deyjandi skepnuna í burtu eða bíður eftir að henni blæði út. Ef móðirin eða aðrir mammútar í flokknum koma til hjálpar gæti hann þurft að halda sig til hlés þar til þeir yfirgefa hinn dauða eða deyjandi unga. Bein útdauðra dýra geta gefið vísbend- ingar unt ýmislegt. T.d. má komast að ýmsu urn lífshætti þeirra. Mörg afmynduð og sködduð bein úr Smilodon hafa fundist. Mörg þeirra bera þess merki að þau hafi gróið, jafnvel þótt það hafi tekið marga mánuði, og dýrið sjálft hafi ekki haft möguleika til veiða. Eina vonin fyrir svona skaddað dýr að lifa af er að einhver færi því mat eða það fái að éta af bráð sem annað dýr fellir. Þetta bendir til þess að Smilodon hafi lifað í flokkum líkt og ljón gera nú á tímum (Mestel 1993). Fundir á sködduðum og síðar grónum beinum Homotherium eru mjög fáir. Það bendir til þess að sverðkettir hal’i frekar veitt einir síns liðs og aðeins farið um í hópum, sem líklega samanstóðu af móður og ungum hennar, ekki ósvipað og hlébarðar gera á okkar tímum. Því átti sá Homotherium sem var skaddaður og ekki gat veitt sjálfur litla eða enga möguleika á að lifa af (Rawn- Schatzinger 1992). ■ HEIMILDIR Akersten, W.A. 1985. Canine function in Smilodon. Contr. Sci. Los Angeles 356. 1-22. Anyonge, W. 1993. Body mass in large extant and extinct carnivores. Journal of Zoology, London. 231. 339-350. Anyonge, W. 1996. Locomotor behaviour in Plio-Pleistocæn sabre-tooth cats: a bio- inechanical analysis. Journal of Zoology, Lon- don. 238. 395-413. Carroll, R.L. 1988. Vertebrate Paleontology and Evolution. W.H. Freeman and Company, New York. 698 bls. Dybka, 1989. Machairodus sp. from the Lower Pliocæn bone brechia of Wese (Poland). Acta Palaeontologica Polonica 35. 77-83. Gingerich, P.D. 1977. Patterns of Evolution in the Mammalian fossil record. í: Patterns of 92
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.