Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 32
Á NÆSTUNNl
L. ^
Nokkur fjöldi greina bíður nú birtingar í Náttúrufrœðingnum. í framhaldi af
breyttum áherslum í efnisvali berst tímaritinu nú sífellt meira af alþýðlegu efni
en því er ekki að leyna að nokkur hörgull er á stuttum pistlum. Hér verður tœpt
á efni nokkurra þeirra greina sem birtast munu í næstu heftum.
Refirá Hornströndum
Refir hafa verið alfriðaðir í Hornstranda-
friðlandi frá 1. júlí 1994. Nú eru þekkt 172
greni í friðlandinu og voru 170 þeirra heim-
sótt sumarið 1999. Það var hópur undir
forystu Páls Hersteinssonar prófessors sem
fór á Hornstrandir 1998 og 1999, þau Ester
Rut Unnsteinsdóttir, Anna Heiða Olafs-
dóttir, Hólmfríður Sigþórsdóttir, Þorleifur
Eiríksson og Þorvaldur Björnsson. Þau
skýra frá niðurstöðum sínum um Greni í
ábúð og flutning refa út úr friðlandinu í
næsta hefti Náttúrufræðingsins.
Skir eyðimerkurinnar
í þessu hefti lýkur samantekt Örnólfs Thor-
lacius um Þróun tegundanna, en hann
heldur áfram að fræða lesendur Náttúru-
fræðingsins eins og hans er von og vísa. I
næsta hefti fræðumst við um úlfaldann og
ættingja hans, lamadýrin en af úlfaldaætt
eru nú uppi sex tegundir dýra, fjórar í S-
Ameríku og tvær í Gamla heiminum.
Örnólfur fjallar um líkamsgerð dýranna og
lífshætti og um aðlögun úlfaldans að þurrki
og hitasveiflum.
Sædýr í Rauðamel
Feðginin Ólöf E. Leifsdóttir og Leifur A.
Símonarson hafa rannsakað setmyndanir í
Rauðamel á Reykjanesskaga og skýra í
næsta Náttúrufræðingi frá fundi sædýra þar,
m.a. hrúðurkarla, samlokuskelkja og snigil-
svamps. Telja þau að fánan hafi lil'að í sjó
með svipaðan sjávarhiga og nú er við
Norðurland og Austfirði.
VÖKTUN SjÓFUGLA
Dílaskarfur er eina sjófuglategundin á
Islandi sent er vöktuð í öllum byggðum.
Ágætar upplýsingar eru lil um súlustofn-
inn en aðrar tegundir sjófugla eru aðeins
vaktaðar að hluta. Um sumar sjófugla-
tegundir gildir að ekki er búið að skrá hvar
allar byggðir þeirra eru í landinu. Um
Vöktun sjófugla skrifar Ævar Petersen í
Náttúrufræðinginn og setur fram tillögur
um skipulega vöktun 23ja tegunda ís-
lenskra sjófugla
Hvalir í Akrafjalli
Það þótti sæta nokkrum tíðindum þegar
hvalbein fundust í Akrafjalli 5. júní 1997 í
um 80 metra hæð yfir sjó. Þetta eru þó ekki
einu leifar sjávarspendýra sem fundist hafa
í íslenskum jarðlögunt og bera vott um að
fyrr á tímum var afstaða láðs og lagar allt
önnur en nú er. Beinafundur sem þessi
varpar ljósi á þær umhverfisbreytingar sem
urðu í lok íslandar þegar jökla leysti af
landinu og það reis úr sæ. Um Aldur hval-
beina og efstu fjörumörk í Akrafjalli rita
þau Brynhildur Magnúsdótlir og Hregg-
viður Norðdahl í Náttúrufræðinginn.
94