Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 33
PÁLL THEODÓRSSON
ÁLDURSGREINING
MEÐ KOLEFNH4
Aldursgreining með kolefni-14, geisla-
kolsgreining, er öflugt hjálpartœki í
jarðfrœði og fornleifafrœði. Upphaf
hennar má rekja til ársins 1946 þegar
bandaríski efnafrœðingurinn W.F.
Libby eygði möguleika á að ákvarða
aldur lífrænna jurta- og dýraleifa af
styrk geislavirkrar kolefliissamsœtu
sem hann taldi að kynni að finnast í
lífverum. Þetta byggði liann á vísbend-
ingu um að geimgeislar breyti nitri í
koIefni-14 í heiðhvolfinu og geisla-
virkni þess í lifandi gróðri og fornum
plöntuleifum vœri hugsanlega mœlan-
leg. Libby og nokkrir nemendur hans
við háskólann í Chicago staðfestu hug-
myndina og þróuðu aðferðina á árun-
um 1947-1951. Libby lilaut Nóbels-
verðlaunin fyrir afrek sitt árið 1960.
Upp úr 1960 höfðu allmargar
aldursgreiningarstofur verið
settar á laggirnar og mælingarnar
_________ voru orðnar nokkuð nákvæmari
og ekki eins tímafrekar og í fyrstu. For-
Páll Thcodórsson (f. 1928) lauk mag.scient.-prófi
í eðlisfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1955.
Hann starfaði við rannsóknastöð dönsku kjarn-
orkunefndarinnar í Risp 1956-1958. Hann vann
við Eðlisfræðistofnun Háskóla Islands 1958-
1961. Á árunum 1961-1963 vann hann hjá Raf-
agnatækni, sem hann stofnaði ásamt tveimur
verkfræðingum. Páll kom aftur til Háskólans
1963 og hefur starfað þar síðan, fyrst við Eðlis-
fræðistofnun og síðar Raunvísindastofnun Há-
skólans. Hann fór á eftirlaun 1998 en vinnur við
að Ijúka verkefnum, m.a. að fullprófa nýtt vökva-
sindurkerfi til aldursgreininga.
sendur aðferðarinnar voru þá kannaðar mun
ítarlegar en Libby hafði haft tök á og kom þá
í ljós að mikilvæg atriði þurfti að endurskoða
og leiðrétta. Rúmir þrír áratugir liðu þar til
geislakolsgreining komst loks á traustan
grundvöll.
Lýsing aðferðarinnar í erlendum ritum er
af sögulegum ástæðum mun flóknari en hún
þarf að vera, því jafnan er lýst keldum og
krókum sem urðu í vegi vísindamanna í
þróunarstarfinu og sögulegar flækjur eru
útskýrðar fyrir nýliðum. Túlkun á niður-
stöðum verður flóknari fyrir bragðið. Rann-
sóknarstofurnar gefa þannig viðskipta-
vinum sínum tvennskonar aldur: sýndar-
aldur (radiocarbon age) og raunaldur eða
árhringjaaldur (calendar age eða dendra-
chronological age). Þetta veldur iðulega
misskilningi og rangtúlkun.
I þeirri dálítið einfölduðu lýsingu sem
kynnt er í næsta kafla er sneitt hjá sögu-
legum flækjum í þróunarsögu aðferðarinnar.
Þeir sem láta sér nægja að kunna skil á
grunnatriðunum þurfa aðeins að lesa fram til
loka næsta kafla en fyllri lýsing er gefin í
síðari köflum. I viðaukum er gerð grein fyrir
nokkrum atriðum sem treysta enn frekar
lýsinguna og þar er skýrt sögulegt sam-
hengi í þróun aðferðarinnar.
■ GRUNNATRIÐI
GEISLAK.OLSGREININGA
Kolefni, sem í efnafræði er táknað með C
(carbon), er undirstöðuefni í vefjum plantna
og dýra. Öll atóm þess fylgjast nákvæmlega
að (eða mjög nærri því) í efnahvörfum þótt
Náttúrufræðingurinn 69 (2), bls. 95-108, 2000.
95