Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 38
3. mynd. Kvörðunarferlar geislakolsgreininga fyrir tímabilið frá 600 til 1200. Ferill
Libbys var notaður fyrstu tvo áratugi geislakolsgreininga. Ferill Ralphs, sem notaður var
um árabil, er nálgunarferill sem byggðist á gisnum árhringjamœlingum. Nýjasti ferillinn,
þar sem mœlipunktarnir eru sýndir, byggist á mjög nákvæmum árhringjamœlingum bestu
aldursgreiningarstofanna (Stuiver og Pearson 1986).
ítarlegar upplýsingar um kvörðunar-
ferilinn er að finna í sérhefti af tímaritinu
Radiocarbon (35/1, 1993), en það er
helgað kvörðunarmælingum. Hluti ferils-
ins, þ.e. fyrir tímabilið frá árinu 600 til 1200
sem er mikilvægt fyrir íslenska fornleifa-
fræði, er sýndur á 3. mynd. Þar eru einnig
sýndir tveir eldri kvörðunarferlar, sem rætt
er um í Viðauka F, en þeir byggðust á mun
gisnari og nokkuð ónákvæmari mælingum.
Það eykur mjög áreiðanleika nýjasta
ferilsins að mælisýnin eru úr bæði eik frá
Evrópu og furu frá Bandaríkjunum, þau
hafa verið mæld í nokkrum aldursgreining-
arstofum og ýmist verið í vökvaformi
(bensen) eða gasformi (C02). Niðurstöður
mælinganna falla þétt að einum ferli. Enn
er þó ekki útilokað að 0,1-0,2% munur
kunni að vera í samtímagróðri frá
mismunandi svæðum, t.d. milli norður- og
suðurhvels jarðar.
Lýsing á ákvörðun aldurs og óvissu hans
getur verið allflókið mál vegna þess að
kvörðunarferillinn er nokkuð óreglulegur og
er því ekki ávallt einhlítt samband milli C-14
remmunnar og vaxtarskeiðs. Einnig þarl' að
taka tillit til óvissu í mælingu sýnisins og
árhringjanna. Síðari óvissan er oftast mun
minni.
Landnámslagið er öskulag sem lagðist yfir
stóran hluta íslands í gosi í Vatnaöldum árið
871. Þessi nákvæma tímasetning fékkst af
rannsóknum á samsætum og öskulögum í
ískjarna frá Grænlandsjökli (Karl Grönvold
o.fl. 1995). íslenskirfornleifafræðingarnýta
þetta öskulag mikið lil að tímasetja forn-
leifar. Hugsum okkur að C-14 remma í birki-
hríslu sem fundist hefur rétt við landnáms-
lagið mælist 90,5 %Ox. Af ferlinum á 3. mynd
má lesa vaxtartíma hennar með því að leita á
kúrfunni að ári sem gefur sama %Ox-gildi og
hríslan. Farið er lárétt út frá 90,5 %Ox á
100