Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 40

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 40
1. tafla. Dreifing kolefnis-14 og C-14 remma, A '. Hluti C-14forðans Hlutfallsleg C-14 remma Andrúmsloft 1,4% 100% Gróður á landi 3,4% 100% Yfirborðssjór 1,3% 95% Djúpsjór 93% 84% síðar vegna ofangreindrar hægrar blöndun- ar kolsýru milli andrúmslofts og yfirborðs- sjávar. Flestar skeljar lifa á grunnsævi þar sem blöndun er ör. Geislakolsremman í þessu vel blandaða yfirborðslagi er nánast hin sama í öllum heimshöfum ef undan eru skilin svæði þar sem C-14 snauðari djúpsjór streymir upp á yfirborðið. Þetta gerist ekki í Norður- Atlantshafi og verður því ekki rætt frekar hér. Geislakol skeljanna er í formi karbónats og helst það einangrað þar á sama hátt og í lífrænum vef plantna. C-14 remma ungra skeija er hinsvegar ekki sú sama og í samtímagróðri á landi, því þær lifa (flestar) í yfirborðssjó þar sem leiðrétt C-14 remma (A’) er 5% lægri en í andrúmsloftinu. Sé kvörðunarferill árhringja notaður til að finna aldur skelja virðast þær því vera um 400 árum eldri en landgróður frá sama tíma. Breytingar í C-14 remmu karbónats í yfirborðslagi hafsins eru ekki alveg í takt við flökt geislakols í andrúmsloftinu, eins og að ofan var getið. Eigi að finna aldur skelja með fullri nákvæmni verður að ákvarða vaxtar- skeiðið með sérstökum kvörðunarferli, sem má reikna út frá C-14 remmu árhringja með því að laka tillit til þeirrar seinkunar sem samskipti milli lofts og sjávar valda (Stuiver og Braziunas 1993). Áður var kvörðunar- ferill trjáa notaður en 400 árum bætt við aldurinn vegna „aldurs yfirborðssjávar", eins og venjulega er sagt, því geislakol dofnar um 5% á 400 árum. Orðalag af þessu tagi er viliandi því erfitt er að skilgreina „aldur sjávar“. ■ NÁKVÆMNI ALDURSGREININGAR MEÐ KOLEFNI-14 Á síðari árum hel'ur allmikil vinna verið lögð í að kanna hversu áreiðanlegar niðurstöður einstakra aldursgreiningarstofa eru. I því skyni hafa verið skipulagðar þrjár umfangs- miklar samanburðarmælingar sem fólust í því að 8-15 sýni af ýmsum gerðum voru send til þátttakenda. Öll sýni hverrar gerðar voru eins, þ.e. með sömu C-14 remmu, og meðal þeirra voru nokkur tvísýni, en það eru sýni af sömu gerð og með sömu C-14 remmu, til að kanna samkvæmni mælinganna hjá hverri stofu. Sagt er frá meginniður- stöðunum í Árbók Hins íslenska fornleifa- félags (Páll Theodórsson 1992). Þessar mælingar hafa sýnt að hluti aldursgreiningarstofanna vanmetur óvissu mælinga sinna. Kerfisbundin skekkja er ekki óalgeng og veldur hún í nokkrum tilvikum 100 til 200 ára skekkju í öllum mæliniður- stöðum viðkomandi stofa. I grein um fyrstu samanburðarmælingarnar, sem 20 valdar stofur tóku þátt í, segir að tryggara sé að miða óvissu þorra stofanna við tvöl'alt það gildi sem upp er gefið og að varfærnislega skuli túlka tímamismun sem sé minni en 200 ár (International Study Group 1982). Nokkrum árum síðar var gerð umfangsmeiri samanburðarrannsókn, með þátttöku liðlega 50 stofa, og staðfesti hún fyrri niðurstöður. Framangreint vanmat á óvissu aldurs- greininga og kerfisbundin skekkja hjá all- mörgum stofum sem nú hefur komið skýrt í ljós skapar óvissu og efasemdir hjá við- skiptavinum stofanna. Um árangur nokkurra stofa ríkir þó engin óvissa. Sex aldursgrein- ingarstofur, sem allar hafa lagt sinn skerf 102

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.