Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 46

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 46
samsætuhliðrunar. Seint á sjöunda áratugnum var tekið að mæla C-13 remmu geislakolssýna og leiðrétta útreiknaðan aldur þeirra fyrir samsætuhliðrun, en það var ekki fyrr en seint á áttunda áratugnum að aldur þorra sýna var leiðréttur. Arið 1969 kom fram vísbending um fimmta skekkjuvaldinn. Um það leyti sem fyrsti hluti kvörðunarferilsins hafði fengist setti Suess fram þá tilgátu, á grundvelli þéttari árhringja- mælinga, að ferillinn væri ekki stöðugt fallandi, eins og Ralph-ferillinn, heldur væru á honum nokkrir hlykkir (wiggles). Nákvæmnin í mælingum hans (0,5%) og fjöldi mælipunkta gerði þó ekki betur en að gefa veika vísbendingu. Um árbil var deilt um hvort hlykkirnir, sem Suess þóttist greina, væru raunverulegir. Ljóst var að ekki yrði unnt að fá staðfestingu á tilgátunni nema með því að fjölga mælisýnum verulega og auka nákvæmnina. Nokkrar rannsóknastofur bættu því tækjakost sinn, þ.e. stækkuðu teljarana, fjölguðu þeim og mældu hvert sýni lengur en áður. Hófst nú mikið átak nákvæmra árhringjamælinga, sem er ekki enn að fullu lokið, en þær hafa staðfest rækilega hugboð Suess. Megináfanga þessa mikla verks var náð þegar Stuiver og Pearson (1986) felldu saman mæliniðurstöður sínar í einn kvörðunarferil. Segja má að aldursgreiningarnar hafi þá fyrst komist á traustan grunn. Enn er unnið við að lengja kvörðunarferilinn og styrkja hann á ýmsan hátt. Við framangreinda skekkjuvalda mætti bæta hinum almennu mæliskekkjum sem geta komið fram sökum ófullnægjandi forhreinsunar sýnanna, örlítillar mengunar í sjálfu mælisýninu eða óstöðugleika mælitækjanna. Þessar mæliskekkjur eru oft vanmetnar. PóSTFANC HÖFUNDAR Páll Theodórsson Raunvísindastofnun Háskólans/Eðlisfræðistofa Dunhaga 3 107 Reykjavík Netfang pth@raunvis.hi.is 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.