Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 51

Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 51
tilteknum gerðum prótína - eða kimaröðina í genunum sem geyma upplýsingar um þessa röð. Því minni sem munurinn er á röðinni, til dæmis á kirnum í geni er stýrir niðurröðun amínósýrueininga í ákveðnu öndunar- ensími, þeim mun styttra er væntanlega í sameiginlegan forföður tegundanna sem saman eru bornar. Einnig er hægt að bera saman skyldar tegundir með því að skoða mörg gen og sjá hve mörg eru hin sömu. Samanburður á manni og simpansa leiðir tii dæmis í ljós að munurinn á genum þessara tegunda er tvö prósent eða minni - sumir segja innan við eitt prósent. Þau greinirit eða „ættartré" sem fást með aðferðum sameindaerfðafræðinnar eru í flestum tilvikum lík þeini mynd sem líffræð- ingar höfðu áður gert sér af innbyrðis skyldleika tegundanna. Nokkur dæmi eru þó um að sameindaerfðafræðin krefjist endur- skoðunar á skyldleikanum, eins og brátt verður vikið að. Hér er komin hlutlægur mælikvarði á skyldleika, óháður öllum fyrri aðferðum sem notaðar hafa verið í þróunarfræðutn. U rrnuNA flokkun Með vaxandi þekkingu á skyldleika tegundanna eykst líffræðingum kjarkur til að brjóta upp hefðbundin kerfi flokkunar og raða lífverum í kerfi sem einungis tekur mið af innbyrðis þróunarskyldleika. Stefnt er að því að hvergi séu saman í flokkunarheild, til dæmis tegund, ættkvísl eða ætt, einstak- lingar sem eru innbyrðis fjarskyldari en þeir eru einstaklingum af annarri tegund, ættkvísl eða ætt, eftir því sem við á. Þetta kallast kladistisk eða fýíógenetísk flokkun sem mætti útleggja upprunaflokkun. I mörgum tilvikum hefur þetta ekki í för með sér breytingar á viðtekinni flokkunar- fræði. Dýrum eða plöntum sviparoft saman vegna þróunarskyldleika, svo varla þarf að leysa upp flokkunarheildir hryggleysingja eins og til dæmis svampa, smokka, krabba- dýr eða skrápdýr. Óvíst er hvort ættbálkur skordýra stenst skilyrði upprunaflokkunar- innar eða ákveðin vængjalaus skorkvikindi, svo sem silfurskotta og stökkskottur, standa nær öðrum deildum liðdýra. Hefðbundnir flokkar hryggdýra - fiskar, froskdýr, skriðdýr, fuglar og spendýr - falla allir á þessu prófi. Fiskamir (þar með vankjálkar, þ.e. slímálar, steinsugur og forfeður þeirra) eru trúlega allir af einum meginstofni en mun styttra þarf að fara aftur í tímann til að finna sam- eiginlegan forföður skúfugga, svo sem bláfisksins er enn lifir í Indlandshafi, og landhryggdýra, til dæmis spendýra, en ætt- föður skúfugga og ýmissa fiska annarra, svo sem þorsks eða skötu. Eins og froskdýr, aldauða og núlifandi, hafa verið skilgreind virðist ljóst að þau eru ekki öll komin af einni grein fiska heldur hafa fornir fiskar oftar en einu sinni gengið á land og skilið þar eftir sig afkomendur. Flokkar skriðdýra, fugla og spendýra standast ekki heldur kröfur upprunaflokk- unarinnar. Skriðdýrin eru sundurleit að uppruna og þróun. Mun lengra er til dæmis í sameiginlegan áa krókódíla og skjaldbakna en kiókódíla og fugla. Fuglarnir standa þó enn nær stóreðlum miðlífsaldar, dínósárun- um, og margir upprunaflokkunarsinnar telja þá raunar lil dínósára (20. mynd). Hinar eiginlegu stóreðlur eru þá greindar frá þeim sem „dxnósárar sem ekki eru fuglar“ (non- avian dinosaurs). Loks eiu ýmis útdauð skriðdýr af sama stofni og spendýiin. (Örnólfur Thorlacius 1994.) ■ aðgreining TEGUNDANNA Hver tegund hefur saineiginlegt safn gena, ákveðið genamengi. Meðan einstaklingaraf ýmsum stofnum hennar æxlast saman flæða genin innan tegundarinnar, þótt innbyrðis hlutfall þeirra sé misjafnt eftir stofnum. Forsenda þess að ein tegund greinist í tvær er einhvers konar hindrun eða tdlmi rnilli stofna sem kemur í veg fyrir kynblöndun. Stofnarnir beggja vegna tálmans þróast þá hvor í sína átt og verða að lokum svo ólíkir að eðlileg kynblöndun verður ekki milli þeiiTa, jafnvel þótt tálminn væri ekki til staðar. 113
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.