Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 52

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 52
Mislend tegundacreining Langoftast er tálminn landfrœðilegur. Finkurnar sem Darwin athugaði á Galáp- agoseyjum hafa borist þangað frá meginlandi Suður-Ameríku fyrir löngu og þróast eftir það óháð finkum þar, auk þess sem fuglarnir einangruðust á einstökum eyjum svo þar komu fram sjálfstæðar tegundir. Tvær tegundir nandúa í Suður- Ameríku, sem Darwin veitti líka athygli, þróuðust sín hvorum megin stórfljótsins Rio Negro, sem þessir ófleygu fuglarkomast ekki yfir. Önnur augljós dæmi um land- fræðilega tálma milli stofna eru fjallgarðar og eyðimerkur. Höf, sem myndast milli megin- landa við landrek eða við breytingar á sjávarstöðu, og jöklar, sem sækja fram á kuldaskeiði, geta líka aðgreint stofna. Þegar stofnarnir ná ekki saman meðan þeir skiptast í tegundir er talað um mislenda tegundagreiningu (allopatric speciation). H/álend og samlend tegundagreining Fyrir kemur að stofnar greinist í tegundir án þess að bil sé milli útbreiðslusvæðanna. Talað er um hjálenda tegundagreiningu (parapatric speciation) ef útbreiðslusvæðin snertast, en samlenda (sympatric) ef stofnar sem lifa saman á svæði greinast í tegundir. Flestar tegundir dýra og plantna eru með tvö mengi litninga í frumunum, annað fengið frá föður en hitt frá móður við frjóvgun. Frumur þeirra er sagðar tvílitna og einstakl ingarn ir tvílitnungar. Við frjóvgun renna kynfrumur saman tvær og tvær og afkvæmið erfir yfirleitt jafnmarga litninga frá móður og föður. Flestar frumur manns eru til dæmis tvílitna með 46 litninga, 23 úr kynfrumu hvors foreldris. Áður en nýjar kynfrumur myndast, parast samstæðir litningar frá rnóður og föður og aðgreinast síðan þannig að hver kynfruma fær einungis annan litninginn úr hverri samstæðu. Kynblendingar milli legunda eru oft lítt frjóir eða ófrjóir af því að litningarnir í frumum foreldranna eru mismargir eða mis- munandi og parast því sjaldan eða aldrei eðlilega. Hins vegar kemur fyrir að kyn- blendingar öðlist samanlagða litningatölu foreldranna. Þegar vel tekst til eignast þannig kynblendingur greiðlega afkvæmi með öðrum sams konar einstaklingum en ekki með foreldragerðunum. Þarna er með öðrum orðum komin upp ný tegund. Fyrir- bærið er kallað fjöllitnun og þekkist hjá plöntum. Það er dæmi um samlenda teg- undagreiningu. Nokkrar tegundir af hjálmgrösum, Galeopsis, vaxa víða um heim. Garðahjálm- gras, G. tetrahit, er með 32 litninga í frumunum. Skyldar tegundir, gullhjálmgras, G. speciosa, og hagahjálmgras, G. pubes- cens, eru með 16 litninga hvor og erfða- rannsóknir benda til þess að garðahjálmgras sé með samanlagða litningana úr hinum tveimur. Samkvæmt því er garðahjálmgras fjórlitnungur úr gullhjálmgrasi og haga- hjálmgrasi. Fjöllitnun er venjuleg hjá nytjaplöntum. Ymsartegundir af villihveiti eru tvílitnungar með 14 litninga í frumunum. Venjulegl brauðhveiti, Triticum aestivum, er með 42 litninga. Það er sexlitnungur með saman- lagða litningana úr þremur tegundum villi- hveitis. Fjöllitnun er lítt þekkt hjá dýrum og engin eðlileg hryggdýreru fjöllitna. Fyrir kemur að stofnar tiltekinnar tegund- ar haldist aðgreindir þótt þeir lifi á santa stað ef lífshættirnir eru mismunandi. í Þing- vallavatni þrífast til dæmis fjórir vel aðgreindir stofnar af bleikju, Salvelinus alpinus, mismunandi um útlit, fæðu og hrygningartíma. Sjálfsagt hafa slfkir stofnar annarra tegunda einhvers staðar greinst í sjálfstæðar tegundir, en samt ber þess að gæta að langflestar tegundir hafa þróast á aðgreindum svæðum, við mislenda grein- ingu. Náttúrlegt val Val náttúrunnar var að mati Darwins helsti allgjafi þróunarinnar (þó ekki sá eini) og enn líta menn á það sem veigamikinn þátt í allri þróun. Með hugtökum erfðafræðinnar má lýsa þessu vali á þann veg að ef einstak- lingar af mismunandi arfgerðum séu mis- hæfir til að lifa og eignast afkvæmi við ákveðin skilyrði, breiðist genin sem stuðla að meiri hæfni út á kostnað hinna.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.