Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 53

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 53
21. mynd. Tvö litarafbrigði piparfetara, Biston betularia. (Chinery, Michael 1976. A Field Guide to the Insects of Britain and Northern Europe. Collins, London.) Þekkt eru mörg dæmi um verulegar og markvissar breytingar á hlutföllum gena þegar lífsskilyrði breytast: Notkun á sýklalyfjum á borð við penisillín kallar fram stofna af sjúkdómsbakteríum sem þola lyfin. Skordýi' sem ákveðin eiturefni, til dæmis DDT, vinna ekki á breiðast líka út fljótlega eftir að farið er að nota þessi efni til að halda dýrunum í skefjum. Hér er ekki um það að ræða að lyfin eða eiturefnin valdi arfgengum breytingum á bakteríunum eða dýrunum. Þessi efni trufla ákveðin ferli í efnaskiptum lífveranna, og í stofnum þeirra eru afbrigði sem sum truflast meir en önnur. Þegar beitt er lyfi eða öðru eitri eyðast þau afbrigði lífvera sem verst þola efnið. Genin sem ráða auknu þoli safnast svo fyrir í stofnunum seni lifa af og smám saman verða til lífverur með meira þol en nokkrir einstaklingar höfðu áður en farið var að beita eitrinu. Piparfetari, Biston hetularia, heitir nátt- fiðrildi sem þrífst víða í Evrópu. Venjulegt form dýrsins er ljóst með dökkum flikrum en einnig þekkist dökkt afbrigði (21. mynd). Á daginn halda fiðrildin að mestu kyrru fyrir, oft á greinum og bolum trjáa þar sem ljósu fiðrildin leynast vel, en hin dökku skera sig meir úr umhverfinu og verða fugl- um fremur að bráð en hin ljósu (22. mynd til vinstri). Með iðnbyllingunni á 19. öld urðu víða á Bretlandi - og raunar víðar - breytingar á umhverfi fiðrildanna. Næst kolaofnum iðn- aðarborganna lagðist sót yfir allt auk þess sem brennisteinsoxíð í lofti, til koniin við bruna kolanna, eyddu fléttum (skófum) al trjánum og börkurinn sem við það kom í ljós var víða dekkri. Brá nú svo við, þar sem iðnaðarmengun var mest, að Ijósu fiðrildin urðu fuglunum auðveldari bráð (22. mynd til hægri). Á iðnaðarsvæðum á Bretlandi er dökka af- brigðið nú í miklum meirihluta en til sveita halda ljósu fiðrildin hlut sínum að mestu. Bandarískir fuglafræðingar hafa síðan 22. mynd. Til vinstri: Glóbrystingurfinnur dökkan piparfetara d Ijósum trjástofni til sveita í Dorset á Bretlandi. Til hœgri: Hér hefur garðaskotta nœlt sér i Ijósan piparfetara á sótmenguðum trjástpfni nœrri Birmingham. (de Beer 1970/ljósm. N. Tinbergen.) 115

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.