Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 54

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 54
23. mynd. „Finkur Darwins", sex tegundir af œttkvíslinni Geospiza, jarðfinkur: (1) G. fortis, (2) G. magnirostris, (3) G. difficilis, (4) G. fuliginosa, (5) G. conirostri.v, (6) G. scandens. (Weiner 1994.) 1973 fylgst með „finkum Darwins" á Galápagoseyjum. Þeir hafa mælt breytileika í líkamsgerð fuglanna frá ári til árs, einkum lögun og stærð nefsins. Þessi breytileiki stendur í beinu sambandi við breytingar á aðstæðum. Árið 1977 breyttu þurrkar til dæmis framboði á fræjum þannig að af því litla sem var í boði var mest um stór og hörð fræ. Þá hrundu stofnar allra tegunda, en einkum þeirra sem gátu ekki nýtt sér þessa fæðu. Hjá einni tegund, sem lifði á þessum stóru fræjum (/ á 23. mynd), mældist að meðaltali stærra og öflugra nef á þeim fuglum sem lifðu af en verið hafði fyrir þurrkinn. Þetta breyttist svo þegar meir rigndi. Þarna fylgjast menn með áhrifum náttúruvalsins „frá degi til dags“. (Weiner 1994.) Ef einstaklingar, dýr eða menn, velja helst maka með vissa arfgenga eiginleika breiðast genin sem þessum eiginleikum stýra út innan stofnsins. Þetta kallaði Darwin kynjað val (sexual selection) og gerði talsvert úr því, of mikið að mati margra fræðimanna. Kvendýrin velja skrautlegustu karldýrin - eða karlar velja sér konur út frá brjósta- eða mittismáli. Þótt val náttúrunnar sé mikilvægt er það 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.