Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 55
24. mynd. Amish heitir krístinn
trúflokkur, stofnaður í Sviss 1693.
Amishmenn hafa nú runnið saman
við áþekka söfnuði í Evrópu en í
Vesturálfu lifa nokkrir söjhuðir
þeirra og blandast lítt öðrum.
Vegna þessa og genasamsetn-
ingar upphaflega landnema-
hópsins er í amishsöfnuði í Penn-
sylvaníu talsvert um erfðagalla
sem annars staðar eru sjaldgœfir,
svo sem Ellis van Creveld-heil-
kenni („sexfingra dvergvöxt"),
eins og barnið á myndinni líður
af. (McKusick, Victor 1969. Hu-
man Genetics. Prentice Hall,
New Jersey.)
ekki eina aflið sem mótar þróunina. Þáttur
stökkbreytinga hefur þegar verið nefndur. í
litlum stofni má búast við genaflökti,
tilviljunarkenndum breytingum á tíðni
einstakra gena. Einstök gen geta jafnvel
með öllu horfið úr stofninum en önnur
breiðst út.
I vissum einangruðum sértrúarflokkum í
Bandaríkjunum, sem komnir eru af fá-
mennum hópum evrópskra innflytjenda og
hafa öldum saman lítt blandað geði og
genum við aðra menn, má enn merkja
afbrigðilega genatíðni landnemanna (24.
mynd). Hér tala menn um landnemaverkun.
I stofnum allra tegunda má greina veru-
lega fjölbreytni í eðlilegunt, arfgengum ein-
kennum, þar sem eitt virðist hvorki betra né
verra en annað. Til dærnis þekkjast afbrigði
af ýmsum ensímum sem öll virðast skila hlut-
verki sínu í efnaskiptunum jafnvel. Margir
telja að tilviljun ein ráði útbreiðslu slíkra ein-
kenna og þar með genanna sent stýra þeim.
Þó er rétt að túlka þetta með gát. Stundum
kemur í ljós að sérkenni sem engu máli
virðist skipta getur haft örlagarík áhrif við
sérstakar aðstæður. Ætla mætti að ekki varði
miklu fyrir einstakling hvort hann er í
blóðflokki A eða B. En ákveðnir sjúkdómar
leggjast mun þyngra á menn í einum
blóðflokki en öðrum. Menn í A-flokki virð-
ast til dæmis þola betur bólusótt en aðrir.
Það er tæpast tilviljun hversu útbreiddur
þessi blóðflokkur er nú meðal afkomenda
þeirra indíána sem verst urðu fyrir barðinu á
bólunni í Kanada eftir að hvítir rnenn báru
sóttina til Vesturheims. Þekkt eru önnur
mein sent leggjast frekar á menn í öðrum
blóðflokkum.
117