Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 60

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 60
28. myncl. Sir Fred Hoyle. (Encyclopœdia Britannica.) Þrúun li'fs í geimnum Sænskur efnafræðingur, Svante Arrhenius (1859-1927), gat sér þess til að lífið væri hingað komið utan úr geimnum með bakteríum sem þrýstingur ljóssins llytti áfram. Kenning hans dró ekki að sér marga fylgismenn. Síðar, eftir að menn fóru að velta fyrir sér skýringum á uppruna lífs á jörðinni, beindist athyglin aftur að henni í breyttri mynd. Þótt fylgismennirnir séu ekki margir nú fremur en áður eru í þeirra hópi virtir vísindamenn. Sumir fræðimenn telja að aldur jarðar sé ekki nógu langur lil þess að lífið geti hafa kviknað hér og þróast. Þeir leiða stærð- fræðileg rök að því að allar stökkbreyting- arnar, sem eru forsenda þeirrar fjölbreytni lífsins sem við okkur blasir, geti ekki hafa gerst á þeim tíma sem jarðfræðin skammtar jörðinni. Aðrir vísindamenn, og raunar mun l'leiri, telja að jörðin sé nógu gömul til þess að saga lífsins geti öll hafa gerst hér. (Sjá til dæmisDawkins 1985.) í fyrri hópnum eru Francis Crick (f. 1916), enskur líffræðingur sem tók þátt í að ákvarða sameindagerð erfðaefnisins DNA, og Sir Fred Hoyle (f. 1915), virtur enskur stjarn- fræðingur (28. mynd). Báðir halda því fram að lífið hafi borist til jarðar utan úr geimnum. Hoyle hefur ásamt öðrum stjarnfræðingi, Indverjanum Chandra Wickramasinghe, sett fram itarlega kenningu um þetta efni. (Sjá Hoyle og Wickramasinghe 1993.) Þeir telja að þróun lífs á jörðinni taki aðeins til aðgreiningar á skyldum tegundum; hráefnið hafi borist til jarðar sem veirur, bakteríur og frosin egg fjölfrumunga. Ný lífsform berist á þennan hátt annað veifið utan úr geimnum. Fáir líffræðingar hafa samt látið sannfærast afskrifum þeina. ■ ÞRÓUNARKEN N1 NGUN N 1 HAFNAÐ Langflestir líffræðingar - og raunar flestir hugsandi og menntaðir menn - gera ráð fyrir því að lífið hafi þróast, þótt ágreiningur sé um skýringu á einstökum atriðuml;. A síðari árurn gætir andstöðu við þróunarkenning- una nær eingöngu hjá minnihluta þeirra manna sem hallast að trúarlegri lúlkun á uppruna og eðli heimsins. Eftir aðpáfinn gaf fylgismönnum rómversku kirkjunnar sjálf- dæmi um afstöðu til þróunarkenningarinnar er engin af megindeildum kristinnar kirkju á móti henni. „SKÖrUNARVÍSINDI “ Kristnir bókstafstrúarmenn hafa samt löngum barist gegn þróunarkenningunni. Á þessari öld hafa umsvif þeirra verið mest áberandi í Bandaríkjunum. Framan af reyndu þeir að koma í veg fyrir að þróunarkenningin væri kennd í skólum vegna þess að hún væri óguðleg. 1 frægum réttarhöldum 1925 var kennari í framhaldsskóla í Dayton íTennes- see lögsóttur fyrir að halda þróunar- kenningunni að nemendum sínum. Kenn- arinn var sekur fundinn og dæmdur til sektargreiðslu. Áfrýjunardómstóll felldi 9 Skoðanakannanir bcnda samt til þess að nærri helmingur almcnnings í Bandaríkjunum tclji að drottinn hafi skapað manninn einhvern tíma á síðustu tíu þúsund árum. (Yam o.fl. 1997.) 122

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.