Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 60
28. myncl. Sir Fred Hoyle. (Encyclopœdia
Britannica.)
Þrúun li'fs í geimnum
Sænskur efnafræðingur, Svante Arrhenius
(1859-1927), gat sér þess til að lífið væri
hingað komið utan úr geimnum með
bakteríum sem þrýstingur ljóssins llytti
áfram. Kenning hans dró ekki að sér marga
fylgismenn. Síðar, eftir að menn fóru að
velta fyrir sér skýringum á uppruna lífs á
jörðinni, beindist athyglin aftur að henni í
breyttri mynd. Þótt fylgismennirnir séu ekki
margir nú fremur en áður eru í þeirra hópi
virtir vísindamenn.
Sumir fræðimenn telja að aldur jarðar sé
ekki nógu langur lil þess að lífið geti hafa
kviknað hér og þróast. Þeir leiða stærð-
fræðileg rök að því að allar stökkbreyting-
arnar, sem eru forsenda þeirrar fjölbreytni
lífsins sem við okkur blasir, geti ekki hafa
gerst á þeim tíma sem jarðfræðin skammtar
jörðinni. Aðrir vísindamenn, og raunar mun
l'leiri, telja að jörðin sé nógu gömul til þess
að saga lífsins geti öll hafa gerst hér. (Sjá til
dæmisDawkins 1985.)
í fyrri hópnum eru Francis Crick (f. 1916),
enskur líffræðingur sem tók þátt í að ákvarða
sameindagerð erfðaefnisins DNA, og Sir
Fred Hoyle (f. 1915), virtur enskur stjarn-
fræðingur (28. mynd). Báðir halda því fram
að lífið hafi borist til jarðar utan úr geimnum.
Hoyle hefur ásamt öðrum stjarnfræðingi,
Indverjanum Chandra Wickramasinghe,
sett fram itarlega kenningu um þetta efni.
(Sjá Hoyle og Wickramasinghe 1993.) Þeir
telja að þróun lífs á jörðinni taki aðeins til
aðgreiningar á skyldum tegundum; hráefnið
hafi borist til jarðar sem veirur, bakteríur og
frosin egg fjölfrumunga. Ný lífsform berist á
þennan hátt annað veifið utan úr geimnum.
Fáir líffræðingar hafa samt látið sannfærast
afskrifum þeina.
■ ÞRÓUNARKEN N1 NGUN N 1
HAFNAÐ
Langflestir líffræðingar - og raunar flestir
hugsandi og menntaðir menn - gera ráð fyrir
því að lífið hafi þróast, þótt ágreiningur sé
um skýringu á einstökum atriðuml;. A síðari
árurn gætir andstöðu við þróunarkenning-
una nær eingöngu hjá minnihluta þeirra
manna sem hallast að trúarlegri lúlkun á
uppruna og eðli heimsins. Eftir aðpáfinn gaf
fylgismönnum rómversku kirkjunnar sjálf-
dæmi um afstöðu til þróunarkenningarinnar
er engin af megindeildum kristinnar kirkju á
móti henni.
„SKÖrUNARVÍSINDI “
Kristnir bókstafstrúarmenn hafa samt
löngum barist gegn þróunarkenningunni. Á
þessari öld hafa umsvif þeirra verið mest
áberandi í Bandaríkjunum. Framan af reyndu
þeir að koma í veg fyrir að þróunarkenningin
væri kennd í skólum vegna þess að hún væri
óguðleg. 1 frægum réttarhöldum 1925 var
kennari í framhaldsskóla í Dayton íTennes-
see lögsóttur fyrir að halda þróunar-
kenningunni að nemendum sínum. Kenn-
arinn var sekur fundinn og dæmdur til
sektargreiðslu. Áfrýjunardómstóll felldi
9 Skoðanakannanir bcnda samt til þess að nærri
helmingur almcnnings í Bandaríkjunum tclji að
drottinn hafi skapað manninn einhvern tíma á
síðustu tíu þúsund árum. (Yam o.fl. 1997.)
122