Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 9
4. mynd. Sólarhringsúrkoma í Andakílsárvirkjun frá maí
til október 1996 og 1997 (efri mynd) og jarðvatnsstaða
íHestmýri á sama tímabili íholu (nr. 12) sem var 6 m frá
framrœsluskurði á sniði II (neðri mynd). - Daily precipi-
tation in May through October at a weather station 5 km
from Hestur (above) and water table depth at the site
over the same period, in a hole (no. 12) positioned 6 m
from a drainage ditch on transect II (below).
Niðurstöður
Niðurstöður mælinga á jarðvatns-
stöðu og samanburður milli ár-
anna 1996 og 1997 sýna að góður
árangur hefur orðið af fyllingu
skurða í mýrinni. Sumarið 1996
voru áhrif skurða ájarðvatnsstöðu
mjög greinileg. Hún var lægst við
skurðina og hækkaði út frá þeim.
Inni á framræsta svæðinu var
vatnsstaða lægst við miðskurð-
inn. Þar fór hún niður á um 160 sm
er hún var lægst síðari hluta júlí, en
á mestum hluta svæðisins var hún
þá á 20-100 sm dýpi (3. mynd). í
holum ofan við skurðinn sem er
undir Mávahlíðarmelum fór jarð-
vatnsstaða aldrei niður fyrir 10 sm.
Þar stóð land hæst á því sniði sem
sýnt er og framræslu gætti ekki (3.
mynd). Er leið á haustið 1996
hækkaði jarðvatnsstaða í mýrinni
með rigningum og kólnandi tíð en
áhrif skurðanna voru þá einnig
mjög greinileg og mynstrið það
sama og fyrr um sumarið (3.
mynd).
Sumarið 1997 mældist lægsta
jarðvatnsstaða í einstökum holum
89 sm og í flestum þeirra seig hún
aldrei svo langt niður (3. mynd).
Þegar jarðvatnsstaðan var lægst
síðari hluta júlí stóð jarðvatn á
innan við 40 sm dýpi í mestum
hluta mýrarinnar og víða var hún
nærri yfirborði. Lítil merki voru um fram-
ræsluáhrif þar sem skurðirnir höfðu verið. I
mýrinni stóð jarðvatn lægst í holum utan í
malarhrygg sem liggur niður miðja þá kvos
sem mýrin er í (1. mynd). Er leið á haustið 1997
hækkaði jarðvatnsstaðan eins og haustið
áður. Sá munur var á að vatn stóð nú nærri
yfirborði um allt mýrarsvæðið (3. mynd). Ef
jarðvatnsstaðan er borin saman þessi tvö ár
á þeim tíma sumars þegar vatn stendur lægst
í jarðvegi má sjá að fylling skurðanna hefur
leitt til þess að jarðvatn í mýrinni hefur
hækkað að jafnaði um 20-160 sm á
framræsta hlutanum (3. mynd). Urkoma var
ekki mæld í Hestmýri þessi tvö sumur en
úrkomutölur frá Andakílsárvirkjun, sem er í 5
km fjarlægð frá svæðinu, sýna að úrkoma á
tímabilinu maí-október var svipuð bæði
sumrin, 603 mm 1996 og 605 mm 1997. Minna
rigndi í Andakíl fyrri hluta sumars 1997 en
úrkoman var heldur meiri er á leið í
samanburði við 1996. Þegar vatnsstaða í
einstökum holum er skoðuð má sjá að hún
sveiflast nokkuð í takt við úrkomuna bæði
sumrin (4. mynd).
Gróðurfar í Hestmýrinni reyndist vera með
talsverðum votlendisblæ sumarið 1996,
enda þótt meira en 10 ár væru liðin frá því að
framræslu lauk (5. mynd). Starir reyndust
enn vera ríkjandi í gróðri og var heildarþekja
7