Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 43
4. mynd. Meðalvindhraði á fjórum veðurathugunarstöðvum
suðvestanlands og á Þingvöllum í mismunandi vindáttum. -
The mean wind speed at 4 stations in SW-Iceland and at
Þingvellir as afunction of wind direction at Keflavik Air-
port.
■ VINDSTRENGIR
OG SKJÓL
Fleira vekur athygli á 3.
mynd. T.d. eru allmargir
staðir þar sem vindur er
minni en víðast annars
staðar. Má þar nefna Hvera-
gerði og Gufudal, Þingvalla-
sveit, svæði norður af
Lönguhlíð og síðast en ekki
síst þann hluta Hvalfjarðar
sem er til hlés við Esju. Búast
má við að skjólið sé háð því f
hvernig viðnám við jörð er |
reiknað og ber því ekki að 1
taka það of bókstaflega.
Þess má líka geta að vitað er
að ekki er alltaf góðviðri
undir hlíðum Esju í suð-
austanátt, og stundum er þar
mun hvassara en annars
staðar. Tengjast slík hvass-
viðri líklega fjallabylgjum,
sem ekki fer sögum af að hafi
haft áhrif á vind á láglendi
þennan dag. Lítið er um
veðurathuganir á þessum
skjólsælu stöðum, að Þing-
völlum undanskildum. Þar
var veður athugað með hefð-
bundnum hætti um áratuga
skeið til ársins 1983 og frá
maí 1996 hafa verið gerðar
athuganir á vindi, hita og
raka með sjálfvirkum tækjum.
Verður nú nánar litið á þær
mælingar, m.a. með það fyrir augum að
kanna hversu raunverulegt það skjól er sem
reiknitilraunin gefur til kynna að fmna megi á
Þingvöllum þegar vindur blæs af suðaustri.
4. mynd sýnir meðalvindhraða í helstu vind-
áttum, annars vegar á Þingvöllum og hins
vegar að meðaltali á fjórum öðruin stöðvum
suðvestanlands, en þær ættu að gefa rauns-
anna mynd af meðalvindi við suðvestur-
ströndina. Stöðvarnar eru Reykjavík,
Keflavíkurflugvöllur, Reykjanesviti og
Eyrarbakki. Miðað er við vindátt á Kefla-
víkurflugvelli, en þar er land fremur flatt og
vindátt að jafnaði líkust því sem væri ef
engin fyrirstaða væri af fjöllum eða óreglu-
legu landslagi. Reiknað er með 6 athugunum
á dag, á 3 klst. l'resti frá kl. 9 á morgnana lil
miðnættis á tímabilinu frá 1. júní 1996 til
jafnlengdar á árinu 1997. Það er óneitanlega
stuttur tími þegar veðurfar er kannað, en
samanburður við fyrri alhuganir gefur til
kynna að þetta eina ár gefi raunsanna mynd
af vindi á Þingvöllum. Á þessum tíma
reyndist meðalvindhraði á stöðvunum
fjórum vera 5,3 m/s en 4,2 m/s á Þingvöllum
(3 vindstig spanna bilið 3,4—5,4 m/s) Sá
41