Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 64
5. mynd. Samband súrefnishliðrunar við hitastig jarðhitavatns. Af myndinni sést að súr-
efnishliðrun er oftast hverfandi efhiti vatnsins er undir u.þ.b. 80°C. Því má nota súrefni-18
sem kenniefni til að rekja uppruna jarðhitavatns, ef hiti þess hefur ekki farið yfir 80°C.
Tíglarnir svara til vatns sem sýnir óvenjumikla súrefnishliðrun miðað við hita. Þetta vatn er
úr borholum á Suðurlandsundirlendi. Talið er að hluti þess sé frá ísöld. Hinn hái aldur
vatnsins skýrir hina óvenjumiklu súrefnishliðrun.
styrk tvívetnis og súrefnis-18 í heitu og
köldu vatni af nokkrum jarðhitasvæðum
(Craig o.fl. 1956). Þeir félagar töldu að kalda
vatnið svaraði til staðbundinnar úrkomu.
Niðurstöðurnar sýndu að tvívetnisinnihald
jarðhitavatnsins var hið sama og í kalda
vatninu. Af því var ályktað að jarðhita-
vatnið væri staðbundin úrkoma að uppruna.
Jarðhitavatnið var hins vegar auðugra af
súrefni-18 en kalda vatnið, enda féll það ekki
á úrkomulínuna (6. mynd). Aður höfðu
mælingar sýnt að berg er auðugra af súrefni-
18 en allt vatn, þar með talinn sjór. Því var
þessi „súrefnishliðrun" frá úrkomulínunni
skýrð með skiptum á súrefni milli vatnsins og
þess bergs sem það hafði streymt um. Súrefni
er sem næst 50% af öllu algengu bergi (miðað
við þunga) og því af nógu að taka. Hins vegar
er sáralítið vatn í flestu bergi og því sáralítið
vetni. Þess vegna er ekki við því að búast að
tvívetnisinnihald vatns geti breyst að neinu
ráði við streymi þess um berg.
Með rannsóknum sínum lögðu Craig og
félagar grunninn að notkun tvívetnis sem
kenniefnis til að rekja uppruna jarðhita-
vatns.
Umfangsmiklar athuganir hafa verið
gerðar á mörgum jarðhitasvæðum frá því
tímamótagrein Craigs og félaga birtist árið
1956. Þessar seinni athuganir sýna að tví-
vetni í heitu vatni á mörgum jarðhitasvæð-
um er ekki hið sama og í staðbundinni úr-
komu. Oftast hefur þetta verið skýrt með því
að jarðhitavatnið svari ekki til staðbundinn-
ar úrkomu heldur til úrkomu af svæði sem
hefur sama tvívetnisgildi og jarðhitavatnið,
og að það sé aðrunnið frá því ákomusvæði.
Sú skýring hefur þó einnig verið sett fram að
samsæturnar í jarðhitavatninu ráðist af því
að það sé blanda af staðbundinni úrkomu og
vatni frá kviku (Giggenbach 1992). Enn-
fremur er mögulegt að jarðhitavatn hafi fallið
sem úrkoma við önnur veðurfarsskilyrði en
nú ríkja og af þeim sökum hafi það ekki sama
62