Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 12
■■I 9. mynd. Horft frá Stangarfjalli til suðurs til Búrfells og Heklu. — Wiew from Mt. Stangarfjall towards south. Mt. Búrfell and Mt. Hekla in the background. (L]ósm.Iphoto: Ágúst Guðmundsson) norðan til hafa þau myndað samfelldar breiður, venjulega úr 2—3 basalt- lögum með völubergi á milli hraunlag- anna. Umhverfis Fossölduver vestan við Fossá eru bleðlar úr rétt segul- mögnuðu basalti. A þessu svæði er móberg mjög útbreitt og er aldur þess líklega liðlega ein milljón ár, eða ívið eldra en rétt segulmagnaða basaltið frá Jaramilló. Vestan við Svartá eru víða tungur úr smástuðluðu, stakdíl- óttu, öfugt segulmögnuðu basalti, sem hefur að öllum líkindum flætt um lægðir á milli móbergshæðanna. ST Stangarfjallsmyndun. Henni til- heyrir syrpa af öfugt segulmögnuðum þóleiít- og dílabasaltlögum, sem liggja ofan á ólivínbasalt lögunum frá Jara- milló segulvikinu. Oft eru jökul- bergslög milli hraunlaganna. Dílabas- altlög þessarar myndunar finn- ast m. a. undir móbergskolli Búrfells (9. mynd), í kolli Skeljafells, Stangar- fjalls, Sandafells, Fossheiðar, Skúm- stunguheiðar og við Starkaðsver. Einnig er jafngamalt basalt, aðallega þóleiít, vestan við Svartárnar (vestan við Fossá) og undir móbergsþekjunni á Búðarhálsi (10. mynd). Aldur Stang- arfjallsmyndunar er talinn vera um 0,8-0,9 milljón ár. BH Búðarhálsmyndun. Elsti hluti Búðarháls og Búrfells er breksía og bólstraberg eða kubbaberg. Móbergiö er öfugt segulmagnað og virðist vera myndað skömmu fyrir segulskiptin, sem urðu fyrir 700 þúsund árum (Brunhes). KG Köldukvíslarmyndun. í Þóris- tungum við vesturbakka Köldukvíslar eru tvö eða þrjú lög af smástuðluðu og kubbuðu ólivínbasalti. Þau eru rétt 106

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.