Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 71
Sigurjón Páll ísaksson:
Stórhlaup í Jökulsá á Fjöllum
á fyrri hluta 18. aldar
INNGANGUR
Kelduhverfi hlýtur að teljast eitt
áhugaverðasta hérað landsins bæði
hvað jarðsögu og náttúrufar snertir.
Jökulsá á Fjöllum dregur að sér at-
hygli, og þó að hún virðist lítið skæðari
en aðrar jökulár þá er hún samt eins
og tröll sem sefur. Feykileg jökul-
vatnshlaup hafa flætt niður gljúfrin og
yfir sandana í Kelduhverfi og Öxar-
firði, en sem betur fer hefur lítið borið
á slíkum hamförum nú í hálfa þriðju
öld. Jökulsárgljúfur og Ásbyrgi munu
hafa myndast í forsögulegum hamfara-
hlaupum (Haukur Tómasson 1973,
Sigurvin Elíasson 1977, 1980). Frá
seinni öldum eru hins vegar til heim-
ildir um minni hlaup, sem hafa þó
verið örlagavaldar fyrir byggð í hérað-
inu. Eflaust er saga þessara hlaupa
skráð í sandana þó að erfitt kunni að
vera að ráða þær rúnir. Jarðvegssnið
tekin á völdum stöðum gætu samt upp-
lýst margt.
Fyrstu aldirnar eftir að land byggð-
ist, fer litlum sögum af óróa í Jökulsá.
f Jarðabók Árna Magnússonar og Páls
Vídalíns (1712), eru óljósar sagnir um
hlaup á dögum Finnboga lögmanns
Jónssonar. Hann hóf búskap að Ási í
Kelduhverfi árið 1467 og bjó þar til
hárrar elli, 1513 eða lengur. (Sagt er
að þá „hafi hjáleiguna (Áshúsabakka)
tekið til grunna, en fólkið með fénað-
inn hafi þá verið burt komið, sem
hafði njósn af hlaupi árinnar.“ Jarða-
bók XI, 300). Fræðimenn eru nú flest-
ir sammála um, að þetta hlaup hafi
staðið í sambandi við eldgos (ösku-
fall), sem getið er um í hinu kunna
heitbréfi Eyfirðinga 11. mars 1477 (ís-
lenzkt fornbréfasafn VI, 103-107).
Rannsóknir á Mið-Norðurlandi hafa
einmitt leitt í ljós þykkt svart öskulag
frá árunum 1465 — 80, sem virðist ætt-
að úr norðanverðum Vatnajökli (Guð-
rún Larsen 1982, Jón Benjamínsson
1981, 1982). Að fráteknum ofan-
greindum munnmælum, eru ekki til
heimildir um hlaup í Jökulsá fyrr en á
árabilinu 1655—1730. Á þeim árum
komu mörg stórhlaup í ána, sem sam-
tímaheimildir eru til um. Hins vegar
verður að draga í efa, að varðveist hafi
heimildir um öll hlaup í ánni á þessu
tímabili.
Hlaupin í Jökulsá á Fjöllum hafa
vakið forvitni margra, jafnt fræði-
manna sem grúskara. Meðal rækileg-
ustu yfirlitsrita um hlaupin eru:
„Ásverjasaga“ eftir Arnór Sigurjóns-
son (1967), „Vötnin stríð“ eftir Sigurð
Þórarinsson (1974), og þó einkum rit-
gerð, sem Sigurður skrifaði í Náttúru-
fræðinginn árið 1950. í ritaskrá eru
talin upp nokkur önnur rit, sem fjalla
um þessi efni, og stuðst hefur verið við
beint eða óbeint. Sú skrá er þó alls
ekki tæmandi.
Náttúrufræöingurinn 54 (4—5), bls. 165—191, 1985
165