Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 14
Reykholtsmyndunar er rétt segul-
magnað ásamt öllu bergi suðaustan
Þjórsár og Tungnár. Ef litið er til K/Ar
(kalíum/argon) aldursgreininga (sjá
töflu I) kemur í ljós, að tvær greining-
ar (sýni 7 og 8) í efri hluta staflans
benda til þess að Sandafellsmyndun sé
frá Jaranrilló segulvikinu. Þær sýna
báðar aldur rétt innan við eina milljón
ára. Um aldur hins rétt segulnragnaða
lduta Reykholtsmyndunar er erfiðara
um að dæma. Helst kentur til greina
að tengja hann Gilsár eða Olduvai
segulviki. í Hagafjalli í Gnúpverja-
hreppi, talsvert neðar í staflanum, er
að finna þriðju jarðmyndunina, senr
hefur rétta segulstefnu. Að líkindum
telst hún til segulvikanna Reunion eða
Olduvai (Ingvar Birgir Friðleifsson
o. fl. 1980).
K/Ar aldursgreiningarnar skera
ekki úr um, hvernig réttast er að
tengja staflann við segultímatalið, en
þó er greinilegt að hann tilheyrir aðal-
lega miðhluta Matuyama. Hér hefur
sá kostur verið valinn að tengja efri
hluta Reykholtsmyndunar við Gilsár
segulvikið.
MÓBERG FRÁ
BRUNHES SEGULSKEIÐI
Skilin milli móbergs frá Brunhes og
eldri myndanna sjást hvergi í opnum á
því svæði sem kortið tekur til. Yfirleitt
eru skilin hulin hraunum, en í Þóris-
tungum er þykkur jökulruðningur og
jarðvegur á þeim. Móberg var ekki
greint upp í myndanir eða ásýndir. Svo
virðist sem elsta hluta móbergs frá
Brunhes segulskeiði sé að finna í Foss-
öldu og Langöldu. Þar er aðallega
bólstraberg, víða með jökulbergs-
kápu. Þó er bólstrabreksía í vestur-
enda Langöldu. Hrauneyjafell og
Valafell eru úr túffi að því er best
verður séð, og Melfell einnig, en í
skorningum í því sést í bólstraberg og
breksíu.
Móberg frá Brunhes segulskeiði er
sýnt með sérstökum lit (ljósbrúnum) á
jarðfræðikortinu til aðgreiningar frá
eldra móbergi. Öll fjöll og hæðir suð-
austan Þjórsár og Köldukvíslar eru úr
móbergi frá Brunhes segulskeiði,
nema Vaðalda sem er úr basalti er
tilheyrir Sandafellsmyndun.
Tafla I. Nokkrar K/Ar aldursgreiningar hafa verið gerðar á bergi af kortlagða svæðinu og
næsta nágrenni þess, sjá sýni 1-3 (Aronson og Kristján Sæmundsson 1976) og sýni 4-í
(Kristinn Albertsson 1976). - K/Ar age determmations on samples from the Búrfell area.
R=Reverse, N=NormaI.
Staður locality segul- stefna magnetic polarity aldur milljón ár age in m.y. athugasemd commen tlformation
1. Búrfell R 2,01±0,07 Búrfellsskógsmyndun
2. Dímon 1,8 ±0,2 Búrfellsskógsmyndun
3. Sámsstaðamúli R 0,7 ±0,7 Sámsstaðamúlamyndun
4. Búðarháls R 1,77±0,04 líparít — rhyolite
5. Dynkur R 0,51±0,04 Sámsstaðamúlamyndun
0,37±0,02 Sámsstaðamúlamyndun
6. Dynkur R 0,37±0,12 næsta lag ofan viö nr. 5.
7. Dynkur N 0,76±0,03 Sandafellsmyndun
8. Dynkur N 0,80±0,05 Sandafellsmyndun
108