Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 4

Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 4
162 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Fyrsta Pólarárið jók mjög þekkingu vora á norðurslóðum, enda var á næstu árum þar á eftir skrifaður fjöldi vísindalegra rita, byggð á athugunum þeim, sem gerðar voru, oft við mjög erfið skilyrði, af leiðangursmönnum á rannsóknarstöðvum Pólarársins. Pólarárið 1932—1933. Á fyrstu áratugum 20. aldarinnar varð mjög ör þróun í flestum greinum náttúruvísindanna. Á sviði jarðeðlisfræði var þróunin hvað örust, t. d. í þeim greinum, sem mest áherzla var lögð á Fyrsta Pólarárið. Einnig höfðu opnast ný rannsóknarsvið innan jarðeðlisfræðinnar, svo sem þau fræði, er varða jónhvolf jarðarinn- ar og geimgeisla. Rannsóknar- og mælitæki höfðu þróast mjög. Þekking vor á pólsvæðum jarðarinnar hafði aukizt, svo að lögun og staðsetning landa og eyja var að mestu þekkt. Vegna allra þeirra nýjunga í vísindum og tækni, sem fram höfðu komið síðan á tímum Fyrsta Pólarársins, var stungið upp á því árið 1927 að endurtaka svipaðar samræmdar rannsóknir á heimskauta- svæðum jarðarinnar. Ýmsar alþjóðlegar vísindastofnanir fjölluðu um málið og Alþjóðlega veðurfræðistofnunin lagði formlega til árið 1929, að stofnað yrði til nýs Pólarárs 50 árum eftir Fyrsta Pól- arárið. Margar þjóðir hófu undirbúning að Öðru Pólarárinu, en um sama leyti skall yfir hin mikla efnahagskreppa og munaði minnstu að hún kollvarpaði öllum áætlunum. Vafalaust hefir kreppan valdið því, að Annað Pólarárið varð minna í sniðunum en annars hefði orðið, en dugnaður og harðfylgi örfárra manna bjargaði því, sem bjargað varð. Öðru Pólarárinu var hleypt af stokkunum 1. ágúst 1932 og stóð það yfir til 31. ágúst 1953. Alls tóku 44 þjóðir þátt í því, þar af sendu 22 þjóðir rannsóknarleið- angra út fyrir sín eigin lönd. Svo sem nafnið bendir til, var rann- sóknum Pólarársins einkum beint að heimsskautasvæðum jarð- arinnar og þó fyrst og fremst að norðurskautssvæðinu. T. d. var segulmælingastöðvum norðan 60. breiddarbaugs fjölgað úr 7 í 30. Þá voru jarðeðlisfræðilegar athuganir einnig auknar og samræmdar annars staðar á jörðinni. Athuganir þær, sem mest áherzla var lögð á voru veðurathugan- ir, jarðsegulmælingar og norðurljósaathuganir, en minni áherzla var lögð á mælingar á rafmagni í gufuhvolfinu og jónhvolfsathug- anir.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.