Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 6
164
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
an um það í aðalatriðum, hvernig rannsóknum Jarðeðlisfræði-
ársins skyldi hagað. Meðal annars hafði náðst samkomulag um, að
rannsóknarsviðið skyldi ekki bundið við heimsskautasvæði jarðar-
innar, heldur skyldi lögð áherzla á rannsóknir um alla jörðina,
en þó sér í lagi á þeim hlutum hennar, sem minnst voru rannsak-
aðir áður. Ýmsar breytingartillögur varðandi tilhögun Jarðeðlis-
fræðiársins voru þó samþykktar síðar, og þegar það hófst 1. júlí
1957 var framkvæmd þess ákveðin svo í aðalatriðum:
a. Alþjóðlega jarðeðlisfræðiárið nær yfir tímabilið 1. júlí 1957
til 31. desember 1958, eða 18 mánaða tímabil.
b. Á þessu 18 mánaða tímabili skal lögð sérstök áherzla á jarðeðlis-
fræðilegar athuganir á þeim hlutum jarðarinnar, sem lítið hafa
verið rannsakaðir áður. Er þar fyrst og fremst um að ræða
heimsskautasvæði jarðarinnar, svo og ýms svæði nálægt mið-
baug jarðar.
c. Mest áherzla skal lögð á athuganir þeirra fyrirbæra, sem sam-
tímamælingar á mörgum stöðum þarf til, svo að fullt yfirlit
fáist um þau. Hér er um að ræða veðurathuganir, jónhvolfs-
athuganir, norðurljósaathuganir, geimgeislaathuganir, segulmæl-
ingar o. fl.
d. Einnig skal gera athuganir á öðrum jarðeðlisfræðilegum fyiir-
bærum á þeim stöðvum, sem settar eru upp á Jarðeðlisfræðiár-
inu á lítt könnuðum landssvæðum. Hér er t. d. um að ræða
jöklamælingar, þyngdarmælingar og jarðskjálftamælingar.
e. Ennfremur skal rannsaka fyrirbæri, sem breytast mjög hægt,
til samanburðar við síðari mælingar. Er þar t. d. um að ræða
sjávarstöðumælingar og jöklamælingar.
f. Sérstök áherzla skal lögð á allar mælingar og athuganir á nokkr-
um fyrirfram ákveðnum tímabilum, svokölluðum „Alþjóðá-
dögum“, sem eru þannig ákveðnir, að búast megi við mestum
árangri rannsóknanna. Nokkrir „Alþjóðadagar" eru einnig
ákveðnir með litlum fyrirvara, þegar búast má við sérstökum
truflunum á jónhvolfi og segulsviði jarðarinnar.
g. Athugunum og rannsóknum Jarðeðlisfræðiársins er skipt í
eftirfarandi 12 flokka:
1. Veðurfræði.
2. Jarðsegulmagn.
3. Norðurljós og himinglóð.