Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
171
ar gerfitunglanna benda til, að allt upp í 1000 km hæð frá jörðu sé
ástand himingeimsins svipað og áður var álitið. Geimgeislar virð-
ast aukast um hér um bil helming á hverjum 100 km, sem hærra
kemur frá jörð, og í yfir 1000 km hæð eru þeir svo miklir, að mæli-
tækin í fyrsta gerfitungli Bandaríkjamanna gátu ekki mælt þá með
neinni nákvæmni. í sumum gerfitunglunum eru tæki er sýna, hve
oft árekstur hefur orðið við loftsteina. Tækin í fyrsta gerfitungli
Bandaríkjamanna sýndu að meðalfjöldi loftsteina stærri en 1/100
mm í þvermál var ekki yfir 3 á fermetra á klst.
Á Suðurskautslandinu hafa menn nú haft vetursetu í fyrsta sinn
langt frá sjó. Bandaríkjamenn hafa þegar dvalið í tvo vetur á
sjálfum Suðurpólnum og Rússar hafa dvalið í einn vetur ennþá
lengra inni í ísauðn Suðurskautslandsins. Á þessum slóðum hefur
hvað eftir annað mælzt lægri lofthiti, en áður var vitað um við yfir-
borð jarðarinnar og hafa eftirfarandi „heimsmet“ verið sett í þeini
grein síðustu árin:
— 73.5°C 11. maí 1957 á Suðurpólnum.
— 74.5°C 18. sept. 1957 á Suðurpólnum.
— 80.7°C 15. júní 1958 á Vostok.
— 81.0°C 19. júní 1958 á Sovétskaya.
— 83.0°C 25. júní 1958 á Sovétskaya.
Áður hafði verið mælt 68 stiga frost í Síberíu og litlu minna
frost á Grænlandsjökli og í Kanada.
Jöklamælingar á Suðurskautslandinu hafa sýnt, að jökullinn er
sums staðar yfir 4000 metra þykkur og botn jökulsins er allt að
2000 metrum undir sjávarmáli. Á sjálfum Suðurpólnum er jökull-
inn hér um bil 3000 metra þykkur og botn jökulsins nálægt sjáv-
armáli.
Ýmislegt fleira hefur birzt um vísindalegan árangur Jarðeðlis-
fræðiársins í erlendum tímaritum, en margt af því eru bráðabirgða-
niðurstöður, sem vafalaust eiga eftir að breytast við nánari rann-
sókn. Væntanlega koma á næstu árum margar og markverðar upp-
lýsingar um flest þau fyrirbæri, sem rannsökuð eru í þessari mestu
herferð, sem nokkru sinni hefur verið farin, gegn þekkingarskorti
á eðli og ástandi jarðarinnar. Þess er að vænta, að sem mest af
þeim upplýsingum birtist íslenzkum lesendum, en ennþá hefur
lítið komið á íslenzku um þessi efni.