Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 17

Náttúrufræðingurinn - 1959, Síða 17
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 175 og gróðri, sem hvarvetna blasa við sjónum vegfarandans? Sú lýsing er ógerð. Þetta lýsingastarf er þó hafið, og skal ég hér bregða upp mynd af því, hvernig það er unnið, hvernig jarðvegskort og gróður- kort verða til. Jarðvegskort. Við skulum fyrst athuga lýsingu á jarðvegi. Ef við tökum fyrir ákveðið svæði, t. d. Mosfellssveitina, er starfið hafið með því að fara um landið og skipa í flokka þeim jarðvegs- tegundum, er koma fyrir á svæðinu. Þessi flokkun verður að vera gerð þann veg, að unnt sé að greina hverja einstaka jarðvegsteg- und, eða hvern jarðvegsflokk, frá öllum öðrum jarðvegsflokkum, sem koma fyrir á svæðinu, eftir lýsingu með skoðun einni saman, þar sem eina hjálpartækið er jarðvegsbor. Hverjum jarðvegsflokki verður að lýsa á ljósan og einfaldan hátt, þ. e. helztu eðliseiginleik- um hans, svo sem innihaldi lífrænna efna, lit, kornastærð, jarðvegs- byggingu eða svokölluðum strúktúr, jarðraka, þúfum og gróðri, ef um óbrotið land er að ræða. Þegar þeir, sem framkvæma korta- gerðina á víðavangi, hafa rækilega kynnt sér jarðvegsflokkun á rannsóknasvæðinu, þannig, að þeim beri jafnan saman um í hvaða flokk á að skipa hverjum tilteknum jarðvegsbletti, má hefja starfið. Auk jarðvegstegundanna sjálfra, sem gefin eru ákveðin númer, er halli, uppblástur og grjót í jarðvegslaginu einnig gefið til kynna með sérstökum táknum. Loftmyndir eru teknar af svæðinu, og annast Landmælingar ís- lands þessa þjónustu. Þær myndir, sem við notum eru teknar í ná- lega 4000 m hæð. Myndirnar má stækka að vild, og fer stækkun- in eftir því, hve nákvæmlega á að vinna. Þær myndir, sem við not- um við jarðvegskortagerð, eru í mælikvarðanum 1:20000, en all- miklu minni myndir, eða í mælikvarða ca 1:33000, eru notaðar við gróðurkortagerð. Það er yfirleitt auðvelt að átta sig á, hvar maður er staddur á slík- um myndum, því að á þeim má greina vegi, troðninga, læki og jafn- vel keldudrög. Uppblásið land sker sig greinilega úr og oft má greina á milli mýra og þurrlendis. Með loftmyndir, sem festar eru á þar til gerð spjöld eða teikni- borð, er síðan gengið um þau svæði, er gera á kort af, og dregin mörk á milli jarðvegstegunda samkvæmt greiningarlyklinum; jarð-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.