Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 22

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 22
180 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN jarðvegskortagerð. Hún hófst, eða nánar tiltekið undirbúningur að henni, sumarið 1951, en þá dvaldi bandarískur jarðvegsfræðingur, dr. Nygard að nafni, hér á landi um þriggja mánaða skeið. Einar Gíslason, sem unnið hefur að jarðvegskortagerðinni síðan, dvaldi það ár um nokkurra mánaða skeið í Bandaríkjunum og vann þar með bandarískum jarðvegsfræðingum að kortagerð á víðavangi. Auk Einars Gíslasonar og mín, hefur Ingvi Þorsteinsson, kandidat frá landbúnaðarháskólanum að Ási í Noregi, unnið að jarðvegs- kortagerðinni undanfarin sumur. Lokið er útivinnu á svæðinu milli Þjórsár og Ytri-Rangár, frá sjó og norður um Skarðsfjall og gengið hefur verið frá teikningu korta fyrir þetta svæði. Guðmundur Kjartansson hefur skrifað ágæta ritgerð um jarðfræði svæðisins, sem ætlunin var að gefa út með jarðvegskortinu. Ritgerð þessi er nú þegar komin út í ritgerðasafni Atvinnudeildar Háskólans. í Eyjafirði er útivinnu lokið annars- staðar en í Svarfaðardal, og hefur Sigurður Þórarinsson tekið að sér að gera jarðfræðilýsingu af þessu svæði. Við íslendingar höfum átt og eigum því láni að fagna að hafa meðal okkar vel mennt- aða og ágæta jarðfræðinga, og er mikils virði fyrir jarðvegsfræð- inga að eiga þá að. Gróðurkort. Ég skal svo fara nokkrum orðum um aðra tegund landlýsingar, sem hér er hafin, en það eru svonefnd gróðurkort. Með þessum kortum er, eins og nafnið bendir til, lýst gróðri, þ. e. leitast við að sýna hvers konar gróður er á hverjum stað. Raunar er jarðvegi lýst að nokkru leyti um leið, svo nátengt er náttúrlegt gróðurfar jarðveginum. Ætlunin er að gera hin tiltölulega nákvæmu jarð- vegskort í byggð, en gróðurkort af óbyggðum eða afréttum. Til þess að gera gróðurkort eða gróðurlýsingu er ólijákvæmilegt að flokka gróðurinn í gróðurfélög eða gróðurhverfi, á líkan hátt og nauðsynlegt er að skipa jarðvegi í flokka. Hér í felst meginvand- inn við gróðurlýsingu. Náttúran setur engin ákveðin mörk á milli gróðurhverfa. Það er ekki unnt að greina á milli þeirra á jafn ótvíræðan hátt og á milli einstakra jurtategunda. Útlit og eðli gróð- urhverfa ákveðast að sjálfsögðu af þeim jurtategundum, sem þau eru saman sett af, og þá fyrst og fremst af þeirn tegundum, sem eru ríkjandi, enda taka gróðurhverfin jafnan nöfn af helztu jurtateg-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.