Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 24

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 24
182 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN þjónað þeim tilgangi, sem til var ætlazt. Flokkun á hvers konar fyrirbærum í náttúrunni, sem byggð er aðeins á skoðun eða per- sónulegu augnamati, má út af fyrir sig gagnrýna á þeim grundvelli, að hún sé ónákvæm, óáreiðanleg og óvísindaleg. Gróðurkortagerð- in getur þó ekki talizt óáreiðanleg, ef þeim, sem vinna að henni ber jafnan saman um greiningu gróðurhverfanna, og þessu skilyrði verður að fullnægja. Ennfremur ber að hafa það í huga, að hér er ekki um að ræða flokkun í líffræðilegum skilningi á sama hátt og flokkun jurta, heldur þjónar flokkun í gróðurhverfi þeim tilgangi að lýsa og leitast við að mæla þá eigind yfirborðs landsins, sem skipt- ir meginmáli, nefnilega gróðurteppið og útbreiðslu þess. Ef ég geri gróðurkort, sem lýsir gróðurteppi tiltekins svæðis á stórum ítarlegri hátt en áður var tiltækur, þá hefur talsvert á unnizt, enda þótt betur mætti gera, ef fé og vinnuástæður leyfðu. 2) Flokkun í gróðurhverfi er höfð það fábrotin, að menn með tiltölulega litla grasafræðiþekkingu geta greint gróðurhverfin og hagnýtt gróðurkortin. Slík kort hefðu takmarkað hagnýtt gildi, ef flokkun gróðurhverfa væri svo flókin, að aðeins sérmenntaðir grasa- fræðingar gætu gert kort samkvæmt henni og fært sér þau í nyt. 3) Mælikvarði loftmynda, sem notaðar voru við gróðurkorta- gerðina er eins og fyrr var getið ca 1:33 000. Setur hann vinnuná- kvæmni viss og raunar hæfileg takmörk, þannig, að afköst verða til- tölulega mikil og miklu meiri en við jarðvegskortagerð í byggð, en þar er vinnunákvæmni stórum meiri. Mynd af gróðurteppi afrétta verður þannig talsvert grófari en mynd af jarðvegi í byggð, enda er eðlilegt að svo sé frá hagnýtu og hagfræðilegu sjónarmiði. Gnúpverjafaréttur. Sumarið 1955 fórum við í 10 daga leiðangur um Gnúpverjaaf- rétt, sem liggur meðfram Þjórsá að vestanverðu. Á þessum 10 dögum gerðum við kort af afréttinum, frá Þjórsárdalsgirðingu og inn að Fjórðungssandi, en það eru rúmir 55 km í beina línu. Breidd af- réttarins er 5—7 km. í þessum leiðangri tóku þátt auk mín samstarfs- menn mínir, Ingvi Þorsteinsson og Einar Gíslason, svo og Steindór Steindórsson. Fylgdarmaður var Ágúst bóndi Sveinsson að Ásum í Gnúpverjahreppi, og lagði hann til hesta, en við förum um landið á hestum við þessar rannsóknir. S. 1. sumar fór sami hópur, að við- bættum Jóni Jóhannessyni kennara, svo og matreiðslumanni, um

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.