Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 36
194
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
gera hér nokkra grein fyrir þeim mismun, sem er á þessum hag-
nýtu vísindum og þeim, sem nefnd eru hrein.
Hrein vísindi (basic science) liafa ekki annað markmið en það
að afla þekkingar, safna reynslu og staðreyndum, án tillits til þess,
hvort þekkingin eða reynslan kemur að nokkru gagni eða ekki.
Vísindamaðurinn snýr sér að verkefnunum, eins og þau berast að
honum í rás rannsóknanna og lendir oft út á allt öðrum brautum
en hann býst við í upphafi. Þegar eitt viðfangsefni tekur að skýrast,
blasa oftast önnur við, sem einnig krefjast úrlausnar, nýrrar vinnu,
nýrra rannsókna. Þetta er sú eðlilega rás allra vísindarannsókna,
sem hafa aðeins öflun þekkingar að markmiði. Er óhjákvæmilegt,
að stór hópur vísindamanna starfi á þennan hátt, ótruflaðir af
hagnýtum sjónarmiðum.
Hagnýt vísindi (applied science) einkennast af því, að verkefn-
in eru valin með tilliti til einhverra ákveðinna nota. Setja þarf
saman efni, þannig að það hafi ákveðna eiginleika eða fullnægi
vissum skilyrðum, t. d. lyf, sem drepur vissar sóttkveikjur, en skað-
ar ekki líkamann. Rækta þarf jurta- og dýrategundir undir nýjum
kringumstæðum eða jafnvel breyta þeim, svo að þær gefi meiri
arð. Eða finna þarf sem orkumesta og sem léttasta eldsneytisblöndu,
svo að unnt sé að skjóta elclflaug til tunglsins. Vísindamaðurinn
fær hér ákveðin, afmörkuð verkefni og vinnur að þeim, að mestu
leyti eftir fyrirfram gerðri áætlun. Þegar svarið er fengið, er liann
sennilega látinn snúa sér að öðru verkefni, án tillits til þess, hvort
það er nokkuð skylt því fyrra eða ekki.
Skiljanlega eru hin hreinu náttúruvísindi og vísindarannsóknir
undirstaða hinna hagnýtu. Þó er að sjálfsögðu mjög algengt, að
hagnýtar vísindarannsóknir leiði hitt og annað í ljós, sem eykur
þekkingu manna á hinum fræðilegu grundvallaratriðum.
Nám í náttúrufrœðum.
Skólar þeir, sem við taka af barnaskólunum, hafa víða verið
kallaðir realskólar, þ. e. kenndir við það raunhæfa, eða raunvísind-
in. Með þessu lieiti hafa þeir vísu feður réttilega viljað leggja
áherzlu á það, að á þessu fræðslustigi bæri að uppfræða ungling-
ana um það raunhæfa, þ. e. um náttúrulega hluti. Realskólar hafa
á íslenzku hlotið nafnið gagnfræðaskólar og realeksamen verið nefnt
gagnfræðapróf. Þessi þýðing er villandi, þar sem orðið gagnfræði