Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 51

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 51
náttúrufræðingurinn 209 Dúnliulstrastör á Suðvesturlandi. Sumarið 1951 fann ég dúnhulstrastör (Carex pilulifera L.j skammt sunnan Kellavíkurliugvallar, og er það fyrsti fundarstað- ur hennar á Suðvesturlandi. Mun hún eigi hafa fundist nær en á Snæfellsnesi. Ingólfur Davíðsson segir mér, að Norðmaður nokkur muni hafa getið hennar áður frá svipuðum slóðum, þótt ekki sé frá því greint í Flóru íslands, enda eintök frá þeim stað eigi fyrir hendi. Fund- ur minn er staðfesting á því að athugun Norðmannsins muni hafa verið rétt. Bergþór Jóhannsson. Vísindi og dulspeki. Það er næsta sjaldgæft, að íslenzkir menntamenn verði til þess að vekja máls á kenningum dr. Helga Pjeturss um lífsamband milli stjarnanna, og má furðu gegna, þar sem um er að ræða verk, sem er árangur af áratuga starfi manns, sem áður hafði sýnt sig sem frábæran vísindamann. — Nú hefur verið brugðið út af þessari föstu þagnarhefð, og getur Sigurður Pétursson þess í síðasta Nátt- úrufræðingi (sept. 1958), að íslenzkur jarðfræðingur, dr. Helgi Pjeturss, hafi haldið því fram, að líf sé á öðrum stjörnum. Nefnir Sigurður þetta í sambandi við þá tilgátu stjörnufræðingsins Ottó Strúve, að nvstirnin, sem stundum hafa sézt blossa upp úti í fjarska geimsins, og eru vottur um sprengingar heilla sólna, orsakist af jafnfávíslegri meðferð þekkingar á náttúruöflunum og þeirri, sem nú þegar vofir yfir mannkyni þessarar jarðar og kynni að tortíma öllu lífi, sem á henni þróast, ef ekki hlytist meira af. Það er ekki beinlínis að ástæðulausu, að Sigurði Péturssyni kem- ur nafn dr. Helga í hug í sambandi við slíka kenningu, því ef hann þekkti rit hans vel, þá mundi hann geta fundið þar skýringu á fyrirbæri nýstirnanna, sem er næsta lík þeirri, sem Ottó Strúve heldur fram, þótt hún sé líklega ekki minna en 12 árum eldri. En ekki skrifar Sigurður grein sína til þess að minna á slíkt samræmi, né til þess að vara við helstefnunni, sem vissulega er ríkjandi hjá því mannkyni, sem á slíkt yfir höfði sér, heldur hallmælir hann kenningunni og segir, að „rökin fyrir henni nálgist meir dulspeki

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.