Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 53
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
211
fyrst og fremst sú kenning hans, að til væru aðrar jarðstjömur
byggðar mannverum. Að til væru aðrir heimar jafnraunverulegir
og þessi, þar sem lifað væri og elskað, starfað og hugsað eins og hér,
var kenning Brúnós, og sú kenning var jafnóframbærileg áður en
vitað var af því, að til eru aðrar sólir og hún var sjálfsögð eftir að
Brúnó hafði gert þessa uppgötvun. Kenning Kópemikusar var und-
irstaða þessa heimsskilnings, sem ríki dulrænunnar hræddist mest
af öllu, og það var þess vegna sem stuðningsmenn Kópemikusar-
kenningarinnar, Galíleó og fleiri, voru ofsóttir eftir þetta, miklu
fremur en vegna þess, hvernig hún var í sjálfri sér. Allir sem
nokkuð hefur kveðið að við þau réttarhöld, bæði ofsækjendur og
ofsóttir, munu hafa vitað, að það var kenning Brúnós, sem um var
að tefla. En hann var aldrei nefndur á nafn, því það var dauða-
sök að halda honum fram, og svo fór að fyrndist yfir nafn hans að
mestu leyti í nærri tvær aldir, en uppgötvun hans lifði nafnlaus og
varð vísindunum leiðarstjama, unz svo kom, að hún varð sjálf-
sagður sannleikur, sem allir þekkja. Þá fór fyrst að rofa til fyrir
frægð Brúnós, en menn mega reiða sig á það, að baráttan gegn hon-
um hefur enn ekki verið látin niður falla.
Þorsteinn Guðjónsson.
Ritfregn
ÁSKELL LÖVE and DORIS LÖVE,Cytotaxonomical Conspectus of the Ice-
landic Flora, Acta Horti Gotoburgensis, XX, 4, 65—291, 1956.
Það er ekki langt síðan grasafræðingar studdust nær eingöngu við ytri ein-
kenni jurtanna til að greina í sundur tegundirnar og skipa þeim niður í kerfi
eftir „skyldleika" í ættkvíslir. ættir, ættbálka o. s. frv. Nú á tímum hefur lterfis-
fræðin fært mjög út kvíarnar. Útlitseinkennin ein nægja ekki til að komast að
raunverulegum skyldleika lífveranna né licldur til að skilgreina tegundarhug-
takið, sem einatt er mjög á flökti. Taka verður til greina sem flest önnur
einkenni svo sem þau, er snerta lifnaðarhætti, lífsstarfsemi, efnasamsetningu,
vefjabyggingu og útbreiðslusvæði. Síðast, en ekki sízt, hefur verið lögð áherzla