Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 55
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 213 renna undir kjarnakerfisfræðina og höfundar aðhyllast meira og minna. Gnæfir þar hæst nafn jurtalandafræðingsins sænska E. Hultén, en hann hefur fyrstur manna reynt að skýra núverandi útbreiðslu jurtanna á norðurslóðum í Ijósi jarðsögunnar. Að hans skoðun dreifast jurtirnar eftir þurrlendinu, en síður með vindi, fuglum eða sjávarstraumum. Kenning þessi liggur til grundvallar kjarnakerfisfræðinni, því að hún gerir ráð fyrir því, að jurtastóð geti einangr- azt á afskekktum stöðum og þróazt á eigin spýtur, eins og t. d. á Isfandi, eftir að landbrú sú, sem ætlað er að hafi tengt landið við nágrannalöndin, sökk í sæ. Helztu breytingar i fari jurtanna við slíka einangrun geta verið fólgnar í vaxandi litþráðafjölda, samfara útlitsbreytingum og auknu viðnámi gegn ytri aðstæðum. Slík þróun getur leitt til myndunar nýrra afbrigða og jafn- vel nýrra tegunda. Sé nýju tegundunum kynblandað við stofntegundirnar, fást venjulega aðeins ófrjó afkvæmi, er benda til, að nýtegundirnar eru orðnar erfðafræðilega aðgreindar. í>að er því með nákvæmri athugun á fjölda litþráð- anna og hegðun þeirra við kynæxlun, jafnframt víxlfrjóvgunartilraunum, að bezt verður skyggnzt inn í skyldleika tegundanna og uppruna þeirra. Sýnir það okkur líka með hvaða hætti þróun jurtanna hefur getað verið og er yfir- leitt. í lok þessa sama inngangskafla er þeim 540 tegundum æðri jurta eða þar um bil, sem fundizt hafa til þessa í landinu, skipað niður eftir skyldleika við jurdr í nágrannalöndunum á sama hátt og í efnisyfirlitinu hér að ofan. Varpar sú niðurskipan um leið ljósi á niðurstöður höf. um uppruna flórunnar. Af þessum 540 jurtategundum telst höf. til, að 29% sé erlendur slæðingur, sem borizt hefur til landsins síðan byggð hófst. Það, sem afgangs er, eða um 387 tegundir, myndar hinn innlenda hluta flórunnar, þó að frátöldum fíflum og undafíflum. Það er þessi hluti flórunnar, sem mestu máli skiptir í sambandi við þessar rannsóknir. Sé skyldleika hans leitað út á við, reynast 38% vera heimskautategundir, 29% finnast beggja vegna Atlantshafsins, 25% vaxa ein- göngu austanhafs, en aðeins 4% eingöngu vestanhafs. Auk þess telst höf. til, að 4% af innlendu flórunni séu einlendar (endemískar) tegundir; í þeirri tölu eru þó ekki heldur taldir fíflar og undafíflar. í köflunum, sem á eftir fara, er síðan hver hluti flórunnar tekinn til athug- unar, þar með talinn sá, er snertir hinn erlenda jurtaslæðing. I upphafi hvers kafla eru greinagóðar töflur yfir viðkomandi tegundir og litþráðatölur þeirra. Allar litþráðatöluákvarðanirnar liafa verið gerðar af höf. sjálfum. Hver, sem fengizt hefur við frumukjarnaskoðanir, veit, hve gífurleg vinna liggur í slíkri skrásetningu. Það er því mikið þrekvirki að hafa komið upp litþráðatölu- lista yfir allar íslenzkar hájurtategundir. Mun það ekki hvað sízt koma sér vel fyrir þá, sem síðar meir fá tækifæri til að halda áfram þessum rannsóknum á fslandi. Athuganir höf. á tölu litþráðanna í flórunni leiða í Ijós, að 71% af innlenda hluta flórunnar er fjöllitna (polyploid), þ. e. að litþráðatölurnar eru hærri en í samsvarandi tegundum erlendis, en það kemur einmitt vel heim við skoðun höf. um langvarandi einangrun á þessum hluta flórunnar. Eftir hverja töflu ræða höf. nánar einstaka tegundir, sem sérstaklega miklu máli skipta. Er þar samankominn geysimikill fróðleikur, sem erfitt er að gera

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.