Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 6
100
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
jurtanna liafði ekki fengið nægilega langan dvalartíma, þegar til-
raunin hófst 10. nóv. 1964. Er spírunarhæfni þeirra tegunda af
þeim sökum litil fyrstu vikurnar. Við geymsluna eykst hins vegar
smám saman spírunarhlutfall strandjurtanna þrátt lyrir seltuna.
Ylirleitt virðist seltan lítil áhrif hafa á spírunarhæfni fræsins
jafnvel eftir geymslu í fjóra mánuði við 2° C. Að átta mánuðum
liðnum virðist spírunarhæfni hins vegar tekin að minnka nokkuð
og fræ melskriðnablómsins spíraði þá alls ekki.
I aftasta dálki töflunnar er fært seltumagn þess sjávar, sem fræin
voru geymd í. Hefur seltumagnið aukizt lítið eitt í sumum glösunum
við geymsluna vegna uppgufunar frá því að vera 3.09% NaCI við
upphaf tilraunarinnar 10. nóv. '64, en hvergi er verulegt frávik mið-
að við seltu sjávar hér við land.
Af framangreindu er því Ijóst, að fræ þessara sex tegunda, sem
valdar voru úr flokki mela- og strandjurta geta þolað að liggja lengi
TAFLA I.
Hundraðshluti spírunarhæfra fræja eftir geymslu í sjó við 2° C hita.
Percentage of germinating seed follozumg storage in seawater at. 2°C.
,Vikur í sjó — Number of zveeks in seawaler
Tegund Species 1 2 4 8 16 32 NaCl
% % % % % % %
Lambagras Sitene acaulis 70.3 100.0 92.1 84.0 57.0 42.3 3.18
Melskriðnablóm Cardaminopsis þet. 83.2 38.4 15.6 52.0 52.0 0.0 3.12
Músareyra Cerastium alpinum 100.0 91.3 46.7 90.0 90.0 74.0 3.12
Baldursbrá Matricaria maritima 6.6 10.0 30.0 24.1 40.0 54.5 3.26
Kattartunga Plantago maritima 5.1 20.0 66.7 72.0 72.0 50.5 2.61
Fjörukál Cakile edentula 0.0 30.0 20.0 60.0 85.4 37.5 3.27