Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 34
NÁTTÚRUFRÆÐJNGURI NN
124
merki um jökulöldur, endaurðir, sem jökullinn hrúgaði upp á sama
tíma og hann stíflaði upp jökullónin. Þessari spurningu má svara
játandi, og skal nú gerð grein fyrir þeirri hlið' málsins.
Utan í Úlfljótsvatnsfjalli norðvestanverðu er þykk jökulurð.
Myndar hún nyr/t greinilegan ruðningsgarð, sem slagar upp í miðja
fjallshlíðina, en sunnar hækkar hún mjög og verður að kúf miklum,
hér um bil jafnháum fjallinu. Einnig er jökulurð uppi á norðvestur-
brún fjallsins. Sakir þess, hve jökulurðir þessar eru víða harðar og
flagaðar, gæti hér að einhverju leyti verið um staðbundna botnurð að
ræða. Grenás norður frá Úlfljótsvatnsfjalli er allhá jökulalda, sem
liggur ofan á jökulrákuðu grágrýti, oger hún ennþá tiltölulega laus í
sér.
Austan við Úlfljótsvatn er Moldás, ávalur, lágur hæðarhryggur.
Virðist hann fylgja misgengisstalli í undirstöðu sinni, sem er úr grá-
grýti, sennilega komnu frá Þrasaborgum á Lyngdalsheiði. Út undan
Moldási norðanverðum gægist móbergsfjall, er heitir Hesthóll, en
sunnan við hann þar andspænis er Stórhóll, móbergskúfur þakinn
grjóthörðum jökulruðningi. Moldás ergerður úr jökulruðningi, sem
er þó sums staðar rnjög blandaður móbergsmylsnu, svo að úr verður
jökulberg af þeirri gerð, sem nefnt hefur verið ruðningsmóberg
(pseudopalagonit). Það linnst olt sem kápa utan á móbergsfjöllum.
Moldás hefur verið túlkaður sem móbergshryggur (Tómas Tryggva-
son 1955), og raunar finnst nálægt vesturendanum bólstrabreksía
sunnan við þann stað, þar sem ralmagnslínan liggur ylir hann. Enda
þótt Moldás sé gerður úr jökulruðningi, er sá með botnurðarsvip,
flögóttur og grjótharður, og verður hann eigi talinn með jaðarurðum
frá síðjökultíma.
Unga jökulgarða má hins vegar finna norður af Moldási. Þar sjást
3 bogmyndaðir ruðningsgarðar, sem geisla út frá austurhorninu á
7. mynd. Kort yfir jökulmyndanir norðan í Moslellsheiði. Til glöggt’unar
eru sýndir helztu vegir og hæir, vötn og ár.
Abb. 7. Karle iiber tlie glazialen Bildungen auf der nördlichen Mosfellsheiði.
Ziir Orientierung sind Strassen, Htijc, Seeti und Fliisse eingetragen. Ein End-
nioranengiirlel wirtl durcli grosse Punkte entlang von schlangelnden Linien
angegeben. Ausserdem sind eingetragen: Oser = schwarz, Sand und Kies
— feinpunktiert, Gletscherschramrnen, Verwerfungen, und ein inlersladialer
Lavastrom = Horizontalschraffur. Durch Schragschraffur sind in iler Ndhe
von Heid'arbær alte Sl,ausee—Terrassen angedeutet.