Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 41
NÁTTIJ RU FRÆÐI N G U RI N N
131
en Búðastig. En þar með ern hæstn sjávarmörk við Kollaí jörð (um
60 m) jaíníramt eldri en Búðastig. (Hið sama verðnr npp á teningn-
um fram undan Borgarfjarðardölum).
Álftanesmórenan mun líklega mynduð á þurru landi fyrir sjáv-
arhækkunina seint á ísöld og mun því vera eldri en jökuljaðarinn
fremst í Mosfellsdal, og þar með eldri en jökulmenjarnar við Þing-
vallavatn. Verður því ekki annað um aldur þeirra myndana sagt,
eins og nú standa sakir, en það, að þær eru sennilega eldri en Búða-
stig, en yngri en Álftanesmórenan.
VI
Yngsta saga Þingvallavatns, sú sem gerzt hefur eftir daga jökuf-
lónanna, hefur verið viðburðarík, en erfitt er að gera sér grein fyrir
öðrum en helztu stórviðburðum hennar. Lítil tök eru t. d. á því að
finna út með nokkurri nákvæmni, hvernig umhorfs hefur verið
norðan vatnsins, áður en Skjaldbreiður, barnið í fjallahringnum,
reis fyrir norðurenda lægðarinnar, sem vatnið fyllir. Að líkindum
hefur jökulá runnið frá Langjökulssvæðinu vestanverðu suðvestur
lægðina út í Þingvallavatn, en norðurströnd þess hefur eflaust legið
eitthvað norðar en nú. Hraunin frá Skjaldbreið hafa kaffært aur-
ana og öl 1 önnur merki um þessa á. í miklu hraungosi á Tindafjalla-
heiði hefur geysimikið hraun runnið ylir Skjaldbreiðsliraunin sunn-
anverð og í vatnið norðan og austan megin. Milli Dráttarhlíðar og
Kaldárhöfða hefur hraun Jretta runnið i farveg Sogsins og eftir hon-
um alveg niður að Úlfljótsvatni. Það var orsökin, sem að áliti flestra
leiddi til þeirrar hækkunar í vatninu, sem lægsta strandlínan í
„10—13“ m varð af.
Þar sem nokkur vafi lék á um myndun Jtessarar strandlínu, lagði
ég áherzlu á að skoða hana sem bezt og mældi hæð hennar yfir
Þingvallavatni alls staðar þar, sem hennar sáust nógu glögg merki.
Þess er ekki að vænta, að öllum mælingunum beri saman upp á
centimetra, enda þótt um sömu strandlínu væri að ræða, Jdví að
ýmiss konar strandmyndanir voru mældar, sem óhjákvæmilega hljóta
að myndast mishátt miðað við sömu stöðu vatnsborðs. Sums staðar
var mæld hæðin á gröndum eða malarkömbum, sem liggja tiltölu-
lega hátt. Annars staðar var rnælt upp í brimstalla, sem sorfizt hafa
í fast berg, og enn annars staðar var miðað við þann stað, Jrar sem